Umhverfisnefnd

106. fundur 18. ágúst 2015 kl. 10:00 - 11:45 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir formaður
  • Óskar Ingi Sigurðsson
  • Áshildur Hlín Valtýsdóttir
  • Kristinn Frímann Árnason
  • Ólafur Kjartansson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur
  • Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismála ritaði fundargerð
Dagskrá
Kristján Ingimar Ragnarsson L-lista boðaði forföll og varamaður mætti ekki til fundar.

1.Jafnréttisstefna 2015-2019

Málsnúmer 2015060217Vakta málsnúmer

Samfélags- og mannréttindaráð hefur unnið að endurskoðun jafnréttisstefnu bæjarins og óskar eftir umsögn um hana. Meðfylgjandi er tillaga að nýrri stefnu en eldri stefnu má finna á www.akureyri.is
Afgreiðslu málsins frestað.
Umhverfisnefnd óskar eftir að Sigríður Stefánsdóttir framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar mæti á næsta fund nefndarinnar

2.Bjarnarkló á Akureyri

Málsnúmer 2015080046Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Náttúrufræðistofnun Íslands þar sem vakin er athygli á útbreiðslu risahvanna á Akureyri.
Umhverfisnefnd lítur málið alvarlegum augum og mun fara í að stemma stigu við útbreiðslu plöntunnar í bæjarlandinu. Allar tegundir risahvanna eru á A-lista reglugerðar um innflutning, ræktun og dreifingu útlendra plöntutegunda (reglugerð 583/2000 og breytingarreglugerð 505/2011 sjá: http://www.reglugerd.is/reglugerdir/eftir-raduneytum/umhverfisraduneyti/nr/4443). Tegundir á A-lista er óheimilt að flytja til landsins og rækta hérlendis. Lóðareigendur eru hvattir til að uppræta plöntuna ef hún finnst í þeirra görðum.

3.Samgönguvika 2015

Málsnúmer 2015080054Vakta málsnúmer

Umræður um fyrirkomulag samgönguviku.
Umhverfisnefnd samþykkir að taka þátt í samgönguviku með svipuðu sniði og síðustu ár. Starfsmönnum falið að vinna að málinu.

4.Hreinsun svæða og lóða

Málsnúmer 2015080053Vakta málsnúmer

Umræður um fyrirkomulag hreinsunar bæjarlandsins.
Umhverfisnefnd kallar eftir verklagsreglum um aðgerðir ef íbúar bregðast skyldum sínum við að halda lóðum og lendum snyrtilegum sbr. samþykkt um umgengni utanhúss á starfsvæði heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra, nr. 563/2002.

5.Úrgangsmál - starfshópur

Málsnúmer 2014110224Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu málaflokksins, reynslu af nýju fyrirkomulagi á gámasvæði og fyrirhuguðu kynningarátaki.
Umhverfisnefnd felur starfsmönnum áframhaldandi vinnu.

Fundi slitið - kl. 11:45.