Umhverfisnefnd

102. fundur 10. mars 2015 kl. 10:00 - 11:15 Kaffistofa framkvæmdadeild
Nefndarmenn
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir formaður
  • Kristján Ingimar Ragnarsson
  • Óskar Ingi Sigurðsson
  • Áshildur Hlín Valtýsdóttir
  • Ólafur Kjartansson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur
  • Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismála ritaði fundargerð
Dagskrá
Kristinn Frímann Árnason D-lista boðaði forföll og varamaður mætti ekki í hans stað.

1.Glerárdalur - fólkvangur

Málsnúmer 2012080081Vakta málsnúmer

Farið yfir smávægilegar breytingar á 5. gr. og 7. gr. friðlýsingarskilmála Glerárdals sem Umhverfisstofnun leggur til.
Umhverfisnefnd samþykkir breytingarnar.

2.Skógrækt - grænn trefill

Málsnúmer 2015030100Vakta málsnúmer

Kynning á skógræktarskipulagi norðan Glerár og framtíðaráform.

3.Úrgangsmál

Málsnúmer 2014110224Vakta málsnúmer

Áframhaldandi umræður um stöðu væntanlegra breytinga á fyrirkomulagi gámasvæðisins og kynningarefnis.

4.Skógræktarfélag Íslands - Yrkjusjóður

Málsnúmer 2015020054Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi dagsett 4. febrúar 2015 frá Yrkjusjóði þar sem óskað er eftir styrk að lágmarki kr. 150.000 til kaupa á trjáplöntum sem árlega er úthlutað til grunnskólabarna.
Umhverfisnefnd samþykkir að styrkja Yrkjusjóð um kr. 150.000 til kaupa á trjáplöntum fyrir grunnskólabörn. Stjórnendur grunnskóla á Akureyri verða hvattir til að sækja um plöntur til Yrkjusjóðs.

Fundi slitið - kl. 11:15.