Umhverfisnefnd

100. fundur 20. janúar 2015 kl. 14:00 - 15:30 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir formaður
  • Kristján Ingimar Ragnarsson
  • Óskar Ingi Sigurðsson
  • Áshildur Hlín Valtýsdóttir
  • Kristinn Frímann Árnason
  • Ólafur Kjartansson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur
  • Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismála ritaði fundargerð
Dagskrá

1.Samþykkt um umgengni og þrifnað utan húss á starfssvæði heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra - endurskoðun 2015

Málsnúmer 2015010195Vakta málsnúmer

Umræður um samþykktina. Alfreð Schiöth heilbrigðisfulltrúi mætti á fund framkvæmdaráðs undir þessum lið.
Umhverfisnefnd beinir því til Framkvæmdaráðs að tryggt verði að á hverju ári verði fjármagni veitt til að hægt sé að framfylgja samþykktinni um umgengni og þrifnað utan húss á starfssvæði heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra nr. 463/2002 við að halda lóðum og lendum bæjarins snyrtilegum.

2.Samgöngustefna

Málsnúmer 2015010196Vakta málsnúmer

Umræður um gerð samgöngustefnu.
Umhverfisnefnd óskar eftir því að Rúna Ásmundsdóttir umferðaverkfræðingur mæti á næsta fund nefndarinnar til umræðna um samgöngustefnu.

3.Úrgangsmál - starfshópur

Málsnúmer 2014110224Vakta málsnúmer

Forstöðumaður umhverfismála kynnti fundargerðir starfshóps um úrgangsmál.

Fundi slitið - kl. 15:30.