Umhverfisnefnd

80. fundur 12. mars 2013 kl. 16:15 - 17:35 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Hulda Stefánsdóttir formaður
  • Jón Ingi Cæsarsson
  • Ómar Ólafsson
  • Petrea Ósk Sigurðardóttir
  • Ólafur Kjartansson áheyrnarfulltrúi
  • Sif Sigurðardóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur
  • Jón Birgir Gunnlaugsson fundarritari
Dagskrá

1.Reglugerð um eftirlit Umhverfisstofnunar með náttúru landsins

Málsnúmer 2013020293Vakta málsnúmer

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögn umhverfisnefndar á reglugerðardrögum.

Umhverfisnefnd frestar erindinu og felur starfsmönnum að leita álits bæjarlögmanns.

2.Staðardagskrá 21 - endurskoðun 2012

Málsnúmer 2011050056Vakta málsnúmer

Farið yfir hvernig haga skuli áframhaldandi vinnu við endurskoðun.
Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismála kynnti samantekt á þeim niðurstöðum sem fram komu á íbúaþinginu á síðasta ári og settar hafa verið inn í fyrstu drög að verkefnatillögu fyrir Staðardagskrá 21, 4. útgáfu, mars 2013.

Samþykkt að Hulda Stefánsdóttir og Jón Ingi Cæsarsson vinni drögin áfram með starfsmönnum. Stefnt er að því að ljúka þessari vinnu fyrir 1. október 2013.

3.Loftslagsráðstefna í Ålasundi

Málsnúmer 2012090075Vakta málsnúmer

Umræður um ráðstefnuna sem haldin verður í Ålasundi um miðjan júní nk.
Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur lagði fram drög að dagskrá ráðstefnunnar.

Hulda Stefánsdóttir og Kristinn Frímann Árnason eða Jón Ingi Cæsarsson munu taka þátt í ráðstefnunni auk starfsmanna.

4.Umhverfisátak

Málsnúmer 2012080082Vakta málsnúmer

Umræður um innkomnar hugmyndir og fleira tengt átakinu.

Endanlegur listi yfir innkomnar hugmyndir verður sendur nefndarfólki nk. föstudag til kynningar.

5.Úrgangsmál - fræðsla og eftirfylgni til almennings

Málsnúmer 2013030068Vakta málsnúmer

Rætt um frekari kynningar til almennings um úrgangsmálin.
Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismála gerði grein fyrir viðræðum við Gámaþjónustu Norðurlands um hugmyndir að kynningarátaki sem fyrirhugað er að fara í.
Kynnt var samantekt á magntölum úrgangs fyrir árin 2011 og 2012.

Umhverfisnefnd felur starfsmönnum að gera tillögu að kynningarátaki flokkunarmála í samræmi við umræður á fundinum.

Fundi slitið - kl. 17:35.