Umhverfisnefnd

48. fundur 22. júlí 2010 kl. 16:00 - 17:47 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Sigmar Arnarsson formaður
  • Hulda Stefánsdóttir
  • Petrea Ósk Sigurðardóttir
  • Valdís Anna Jónsdóttir
  • Ragnar Sigurðsson
Starfsmenn
  • Jón Birgir Gunnlaugsson fundarritari
  • Helgi Már Pálsson
Dagskrá

1.Staðardagskrá 21- framkvæmdaáætlun 2010-2012

Málsnúmer 2010070099Vakta málsnúmer

Farið var yfir nýsamþykkta Staðardagskrá 21 og áframhaldandi vinnu á þessu kjörtímabili við sameiginlega Staðardagskrá fyrir allt sveitarfélagið.
Sigríður Stefánsdóttir mætti á fundinn og fór yfir þær hugmyndir sem verið hafa til umræðu.

Umhverfisnefnd þakkar Sigríði yfirferðina og mun taka afstöðu til gerðar nýrrar sameiginlegrar Staðardagskrár 21 á næsta fundi nefndarinnar.

2.Sorpmál - framtíðarsýn

Málsnúmer 2009010228Vakta málsnúmer

Helgi Már Pálsson deildarstjóri framkvæmdadeildar og Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismála fóru yfir stöðu málsins.

Umhverfisnefnd þakkar Jóni Birgi og Helga Má yfirferðina.

Fundi slitið - kl. 17:47.