Umhverfisnefnd

50. fundur 23. september 2010 kl. 16:00 - 17:30 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Sigmar Arnarsson formaður
  • Hulda Stefánsdóttir
  • Kolbrún Sigurgeirsdóttir
  • Petrea Ósk Sigurðardóttir
  • Valdís Anna Jónsdóttir
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson
  • Jón Birgir Gunnlaugsson fundarritari
Dagskrá

1.Fuglalíf við Hundatjörn - skýrsla

Málsnúmer 2009100038Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla um fuglalíf við Hundatjörn í Naustaflóa vorið 2010. Skýrslan var unnin af Sverri Thorstensen, Þóreyju Ketilsdóttur og Þorláki Snæ Helgasyni.

Umhverfisnefnd telur rétt að talning verði framkvæmd á svæðinu eftir tvö ár og síðan á fimm ára fresti.

2.Ársfundur náttúruverndar/umhverfisnefnda 2010

Málsnúmer 2010090069Vakta málsnúmer

Lögð fram tímasetning ársfundar umhverfisstofnunar með náttúruverndar- og umhverfisnefndum sveitarfélaga.

3.Fundarmannagátt - umhverfisnefnd

Málsnúmer 2010090068Vakta málsnúmer

Fundarmannagátt kynnt fyrir nefndarmönnum.

Umhverfisnefnd þakkar kynninguna.

4.Sorpmál - framtíðarsýn

Málsnúmer 2009010228Vakta málsnúmer

Deildarstjóri framkvæmdadeildar, Helgi Már Pálsson og forstöðumaður umhverfismála, Jón Birgir Gunnlaugsson, kynntu verksamning við Gámaþjónustu Norðurlands ehf og fyrirkomulag innleiðingar á sorphirðu.

Umhverfisnefnd þakkar starfsmönnum kynninguna.

Fundi slitið - kl. 17:30.