Umhverfisnefnd

121. fundur 13. desember 2016 kl. 10:00 - 11:26 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir formaður
  • Óskar Ingi Sigurðsson
  • Kristján Ingimar Ragnarsson
  • Anna Rósa Magnúsdóttir
  • Áshildur Hlín Valtýsdóttir
  • Jóhannes Árnason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur
  • Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Jón Birgir Gunnlaugsson
Dagskrá
Þetta er seinasti fundur umhverfisnefndar. Nýtt heiti samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar frá 3. janúar 2017 verður umhverfis- og mannvirkjaráð.

Anna Rósa Magnúsdóttir D-lista mætti í forföllum Kristins Árnasonar.
Jóhannes Árnason V-lista mætti í forföllum Ólafs Kjartanssonar.

1.Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030

Málsnúmer 2015110092Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd hefur óskað eftir umsögn um tillögur skipulagsstjóra að Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030. Seinni umræða í umhverfisnefnd.
Umhverfisnefnd felur starfsmönnum að koma athugasemdum nefndarinnar á framfæri við skipulagsnefnd.

2.Glerárdalur - leyfi fyrir þyrluskíðaferðum í fólkvanginum

Málsnúmer 2016120037Vakta málsnúmer

Tekið fyrir ódagsett erindi frá Jökli Bergmann fyrir hönd Arctic heliskiing þar sem hann óskar eftir undanþágu til þyrluflugs í fólkvangnum á Glerárdal.
Umhverfisnefnd vísar bréfritara á að sækja um undanþágu til Umhverfisstofnunar þar sem svæðið er friðlýst sem fólkvangur.

3.Skógræktarfélag Íslands - erindi frá Yrkjusjóði

Málsnúmer 2015020054Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi dagsett 22. nóvember 2016 frá Yrkjusjóði þar sem óskað er eftir styrk að lágmarki kr. 150.000 til kaupa á trjáplöntum sem árlega er úthlutað til grunnskólabarna á árinu 2017.
Umhverfisnefnd samþykkir að styrkja Yrkjusjóð um kr. 150.000 á árinu 2017. Umhverfisnefnd hvetur grunnskóla bæjarins til að sækja um trjáplöntur til útplöntunar í skógræktarsvæði bæjarins.

4.Umhverfis- og samgöngustefna

Málsnúmer 2015010196Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu vinnunnar við gerð stefnunnar.

5.Plastpokalaus Akureyri - fjölnotapokar

Málsnúmer 2016110041Vakta málsnúmer

Framhaldsumræður um plastpokalausa Akureyri og fjölnota innkaupapoka.
Umhverfisnefnd felur starfsmönnum að undirbúa kaup á fjölnota pokum í byrjun árs 2017.

6.Lausaganga katta á Akureyri

Málsnúmer 2016110045Vakta málsnúmer

Umræður um lausagöngu katta í bæjarlandinu.
Umhverfisnefnd óskar eftir því að nýtt umhverfis- og mannvirkjasvið taki til endurskoðunar samþykkt um kattahald á Akureyri.

7.Önnur mál í umhverfisnefnd 2016

Málsnúmer 2016080072Vakta málsnúmer

Kynning á flokkunartunnum í miðbæ.
Umhverfisnefnd fagnar því að flokkunartunnur verði settar upp í miðbænum á næstu dögum.

Fundi slitið - kl. 11:26.