Umhverfisnefnd

119. fundur 11. október 2016 kl. 10:00 - 11:55 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir formaður
  • Óskar Ingi Sigurðsson
  • Anna Rósa Magnúsdóttir
  • Áshildur Hlín Valtýsdóttir
  • Kristján Ingimar Ragnarsson
  • Ólafur Kjartansson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur
  • Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála ritaði fundargerð
Dagskrá
Anna Rósa Magnúsdóttir D-lista mætti í forföllum Kristins Frímanns Árnasonar.

1.Starfsáætlun umhverfisnefndar 2015-2018

Málsnúmer 2015120125Vakta málsnúmer

Farið yfir starfsáætlun umhverfisnefndar.
Umhverfisnefnd felur formanni ásamt starfsmönnum áframhaldandi vinnu við starfsáætlunina.

2.Fjárhagsáætlun 2017- framkvæmdadeild

Málsnúmer 2016080098Vakta málsnúmer

Farið yfir drög að fjárhagsáætlun deilda aðalsjóðs sem tilheyra umhverfisnefnd.
Umhverfisnefnd samþykkir framlagða fjárhagsáætlun 2017 þeirra málaflokka sem undir nefndina heyra.

Umhverfisnefnd óskar þar að auki eftir viðauka að upphæð 10 m.kr. vegna eyðingar plantna á bannlista s.s. risahvannir.

3.Lofslagsráðstefnan á Akureyri 2016

Málsnúmer 2016030014Vakta málsnúmer

Farið yfir dagskrá vinabæjaráðstefnu um loftslagsmál sem haldin verður 19.- 21. október nk.

4.Samgönguvika 2016

Málsnúmer 2016080070Vakta málsnúmer

Umræður um hvernig til tókst með dagskrá samgönguvikunnar og hvort um áframhaldandi þátttöku verður að ræða.
Umhverfisnefnd óskar eftir að þátttaka í evrópsku samgönguvikunni verði tekin til endurskoðunar vegna dræmrar þátttöku.

5.Umhverfis- og samgöngustefna

Málsnúmer 2015010196Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu vinnu við gerð stefnunnar.

6.Önnur mál í umhverfisnefnd 2016

Málsnúmer 2014090054Vakta málsnúmer

Rætt um lausagöngu katta.
Umhverfisnefnd óskar eftir því að mál er varða lausagöngu katta í bæjarlandinu verði tekið fyrir á næsta fundi nefndarinnar.

Fundi slitið - kl. 11:55.