Umhverfisnefnd

116. fundur 10. maí 2016 kl. 10:00 - 11:50 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir formaður
  • Kristján Ingimar Ragnarsson
  • Óskar Ingi Sigurðsson
  • Áshildur Hlín Valtýsdóttir
  • Kristinn Frímann Árnason
  • Ólafur Kjartansson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur
  • Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála ritaði fundargerð
Dagskrá

1.Sandgerðisbót - umsókn um breytingar á deiliskipulagi

Málsnúmer 2015060121Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Skipulagsstofnun dagsett 19. apríl 2016 þar sem óskað er umsagnar Akureyrarbæjar á tillögu að matsáætlun hreinsistöðvar fráveitu á Akureyri.
Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við tillögu að matsáætlun hreinsistöðvar.

2.Samband íslenskra sveitarfélaga - stefnumótun í úrgangsmálum

Málsnúmer 2016040214Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla starfshóps Sambands íslenskra sveitarfélaga um stefnu í úrgangsmálum.
Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við skýrsluna.

3.Svifryk og svifryksmælar

Málsnúmer 2016050038Vakta málsnúmer

Umræður um loftgæði og svifryksmælingar á Akureyri.
Umhverfisnefnd Akureyrarbæjar skorar á Umhverfisstofnun að gera bragarbót á svifryksmæli á Akureyri. Ítrekaðar bilanir hafa verið á mælunum í sveitarfélaginu og óskar umhverfisnefnd eftir því að Umhverfisstofnun komi þessu í þannig ástand að vel verði unað og að hægt sé að treysta mæligildum. Nauðsynlegt sé að hafa virkan mæli svo að hægt sé að meta árangur í baráttunni við svifryk.

4.Mannauðsstefna Akureyrarbæjar - umsagnir nefnda

Málsnúmer 2016050019Vakta málsnúmer

Tekin til umsagnar drög að mannauðsstefnu Akureyrarbæjar.
Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við drögin í heild en bendir á að bæta mætti upplýsingagjöf á launaseðlum.
Óskar Ingi Sigurðsson B-lista vék af fundi kl. 11:20.

5.Umhverfisnefnd - stefnuræða

Málsnúmer 2016050037Vakta málsnúmer

Formaður umhverfisnefndar fór yfir vinnu við stefnuræðuna sem hún mun flytja á bæjarstjórnarfundi þann 17. maí nk.
Umhverfisnefnd þakkar kynninguna.

Fundi slitið - kl. 11:50.