Umhverfisnefnd

110. fundur 24. nóvember 2015 kl. 10:00 - 11:50 Kaffistofa framkvæmdadeild
Nefndarmenn
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir formaður
  • Kristján Ingimar Ragnarsson
  • Óskar Ingi Sigurðsson
  • Áshildur Hlín Valtýsdóttir
  • Ólafur Kjartansson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismála ritaði fundargerð
Dagskrá
Kristinn Frímann Árnason D-lista boðaði forföll og varamaður mætti ekki í hans stað.

1.Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs

Málsnúmer 2015040029Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi dagsett 23. september 2015 frá verkefnisstjórn um svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Norðurlandi 2015-2026, þar sem óskað er eftir samþykki sveitarstjórnar á áætluninni.
Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við áætlunina í heild sinni. Nefndin hvetur hinsvegar til þess að ákvarðanir verði teknar sem varða landið í heild s.s. staðsetningu brennslustöðva fyrir sóttnæman úrgang.
Umhverfisnefnd vísar samþykktinni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

2.Langtímaáætlun - framkvæmdadeild

Málsnúmer 2013040051Vakta málsnúmer

Langtímaáætlun í málaflokkum umhverfisnefndar rædd og verður framhaldið á næsta fundi.

3.Úrgangsmál - starfshópur

Málsnúmer 2014110224Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðuna í fræðslu- og kynningarmálum ásamt fyrirhuguðum breytingum á flokkun endurvinnsluefnis í Hrísey.

Fundi slitið - kl. 11:50.