Umhverfis- og mannvirkjaráð

177. fundur 28. janúar 2025 kl. 08:15 - 10:41 Fundarherbergi UMSA
Nefndarmenn
  • Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir formaður
  • Bjarney Sigurðardóttir varaformaður
  • Þórhallur Harðarson
  • Ingimar Eydal
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Halla Birgisdóttir Ottesen áheyrnarfulltrúi
  • Ólafur Kjartansson áheyrnarfulltrúi
  • Íris Ósk Sverrisdóttir áheyrnarfulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá

1.Þórssvæðið - knattspyrnuvöllur

Málsnúmer 2024030763Vakta málsnúmer

Lögð fram stöðuskýrsla dagsett 24. janúar 2025 varðandi framkvæmdir við gervigrasvöll á félagssvæði Þórs.

2.Lyfta - Vallartún og Eiðsvallargata

Málsnúmer 2024110616Vakta málsnúmer

Lögð fram minnisblöð dagsett í nóvember 2024 varðandi uppsetningu á lyftum við tvö fjölbýlishús í eigu Akureyrarbæjar. Framkvæmdin hefur verið kynnt notendum, auk þess sem styrkur hefur fengist frá Framkvæmdasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Framkvæmdin verður einnig kynnt í samráðshópi um málefni fatlaðs fólks.

Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sat fundinn undir þessum lið.

3.Yfirborðsmerkingar - útboð

Málsnúmer 2021041499Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 24. janúar 2025 varðandi nýtingu framlengingarákvæðis á samningi um yfirborðsmerkingar á Akureyri.

Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að nýta framlengingarákvæði samningsins og framlengja samninginn um eitt ár.

4.Hjólaskýli - kynning

Málsnúmer 2023050622Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 24. janúar 2025 varðandi uppsetningu á hjólaskýlum fyrir starfsfólk við Klappir leikskóla, Glerárskóla og Ráðhús Akureyrarbæjar.

Sigurður Gunnarsson verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.

5.Leikskóli í Hagahverfi

Málsnúmer 2023010583Vakta málsnúmer

Kynning á leikskólanum í Hagahverfi frá Birgi Teitssyni arkitekt frá ARKÍS arkitektum.

Ævar Guðmundsson verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.

6.Malbikunarstöð UM - asfalt

Málsnúmer 2024011659Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 24. janúar 2025 varðandi kaup á asfalti/tjöru af Colas á árinu 2025.

Arnór Þorri Þorsteinsson verkefnastjóri á umhverfismiðstöð sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að semja við Colas um kaup á asfalti fyrir árið 2025 og felur sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs að skrifa undir samning þess efnis.

7.Umhverfismiðstöð - reglubundin endurnýjun tækja 2024-2025

Málsnúmer 2024091463Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 27. janúar 2025 varðandi sölu á eldri tækjum umhverfismiðstöðvar.

Arnór Þorri Þorsteinsson verkefnastjóri á umhverfismiðstöð sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka hæsta tilboði í hvert tæki.


Caterpillar 163H AWD

16.616.000 kr. Grjótverk ehf.


HAMM DV70TV Valtari

3.112.400 kr. Rúko hf.


Wirtgen W50DC malbiksfræsari

2.850.000 kr. Rúko hf.


Scania T92 malbikshitakassi

4.650.000 kr. Klæðning ehf.

8.Hleðslustöðvar á Akureyri - útboð

Málsnúmer 2025011295Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 24. janúar 2025 varðandi drög að staðsetningum fyrir hleðslustöðvar í landi Akureyrarbæjar sem hluti af undirbúningi útboðs um rekstur stöðvanna.

Fundi slitið - kl. 10:41.