Umhverfis- og mannvirkjaráð

128. fundur 15. nóvember 2022 kl. 08:15 - 11:45 Fundarherbergi UMSA
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Inga Dís Sigurðardóttir
  • Þórhallur Harðarson
  • Gunnar Már Gunnarsson
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir
  • Jón Hjaltason áheyrnarfulltrúi
  • Sindri Kristjánsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá
Samþykkt var með öllum atkvæðum að fundurinn væri löglegur þrátt fyrir að dagskrá hafi borist of seint.

1.Hlíðarfjall - vélaskemma

Málsnúmer 2022110166Vakta málsnúmer

Kristinn Magnússon frá Skíðafélagi Akureyrar kynnti sýn skíðafélagsins á uppbyggingu á svæðinu.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að leita tilboða í byggingu á vélaskemmu í Hlíðarfjalli á reit E í deiliskipulagi frá árinu 2014.

2.Holtahverfi - gatnagerð og lagnir

Málsnúmer 2021023068Vakta málsnúmer

Lögð fram stöðuskýrsla 2 dagsett í október 2022 vegna 1. áfanga verksins, Holtahverfi norður.

Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.

3.Verklagsreglur um framkvæmdir í landi Akureyrarbæjar - endurskoðun

Málsnúmer 2022110165Vakta málsnúmer

Lagðar fram verklagsreglur Akureyrarbæjar vegna yfirborðsfrágangs í bæjarlandinu.

Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.

4.Bifreiðastæðasjóður - gjaldtaka

Málsnúmer 2019050628Vakta málsnúmer

Kynning á árangri af gjaldtöku á bílastæðum í eigu bílastæðasjóðs.

Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.

5.Umhverfismiðstöð - reglubundin endurnýjun tækja 2021-2022

Málsnúmer 2021040823Vakta málsnúmer

Minnisblað dagsett 2. nóvember 2022 vegna opnunar tilboða í litla og stóra dráttarvél fyrir umhverfismiðstöð Akureyrarbæjar.

Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar og umhverfismiðstöðvar og Arnór Þorri Þorsteinsson verkefnastjóri á umhverfismiðstöð sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði frá Þór hf. í stóra dráttarvél að upphæð kr. 25.300.000.

Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði 2 frá Þór hf. í litla dráttarvél að upphæð kr. 10.540.000.

6.Fjárhagsáætlun UMSA 2023 - gjaldskrár

Málsnúmer 2022080337Vakta málsnúmer

Lagðar fram gjaldskrár UMSA.

Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar og umhverfismiðstöðvar og Arnór Þorri Þorsteinsson verkefnastjóri á umhverfismiðstöð sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagðar gjaldskrár og vísar þeim til bæjarráðs.

7.Fjárhagsáætlun UMSA 2023

Málsnúmer 2022080337Vakta málsnúmer

Eignfærsluáætlun 2023-2026 lögð fram til kynningar.

8.UMSA - endurnýjun bifreiða og tækja

Málsnúmer 2022090104Vakta málsnúmer

Tekin fyrir sala á eldri körfubíl Slökkviliðs Akureyrar.
Umhverfis- og mannvirkjarráð samþykkir að selja Slökkviliði Fjallabyggðar eldri körfubíl Slökkviliðs Akureyrar.

9.Umhverfisstofnun - tilnefning fulltrúa í vatnasvæðisnefnd 2022

Málsnúmer 2022110264Vakta málsnúmer

Tekin fyrir beiðni Umhverfisstofnunar um tilnefningu fulltrúa í vatnasvæðisnefnd.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð tilnefnir Rut Jónsdóttur forstöðumann umhverfis- og sorpmála og Guðríði Friðriksdóttur sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs til vara.

10.Úrgangsmál - fyrirkomulag og útboð

Málsnúmer 2022110167Vakta málsnúmer

Kynning á fyrirhuguðu útboði á söfnun og móttöku úrgangs.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.
Þórhallur Harðarson D-lista vék af fundi kl. 10:57.

11.Svifryksmælingar

Málsnúmer 2022110574Vakta málsnúmer

Kynning á stöðu svifryksmæla í bæjarlandinu.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.

Fundi slitið - kl. 11:45.