Umhverfis- og mannvirkjaráð

111. fundur 17. desember 2021 kl. 08:15 - 10:50 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Unnar Jónsson
  • Sunna Hlín Jóhannesdóttir
  • Sigurjón Jóhannesson
  • Berglind Bergvinsdóttir
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá

1.Umhverfismiðstöð - ræsting

Málsnúmer 2021120745Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 15. desember 2021 varðandi opnun tilboða í ræstingu á umhverfismiðstöð.

Georg Fannar Haraldsson verkefnastjóri á rekstrardeild og Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda Þrif og ræstivörur ehf.

2.Skautahöllin á Akureyri - viðbygging við félagsaðstöðu

Málsnúmer 2021120730Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 15. desember 2021 varðandi útboð framkvæmda við félagsaðstöðu í Skautahöllinni á Akureyri.

Kristján Snorrason verkefnastjóri nýframkvæmda og Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sátu fundinn undir þessum lið.

3.Félagssvæði KA - gervigrasvellir

Málsnúmer 2021120734Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 15. desember 2021 varðandi útboð framkvæmda við gervigrasvelli á félagssvæði KA á Akureyri.

Kristján Snorrason verkefnastjóri nýframkvæmda og Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sátu fundinn undir þessum lið.

4.Sparkvellir við grunnskóla - endurnýjun á gervigrasi 2022

Málsnúmer 2021120731Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 15. desember 2021 varðandi útboð framkvæmda við sparkvelli við Glerárskóla, Síðuskóla og Naustaskóla.

Kristján Snorrason verkefnastjóri nýframkvæmda og Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sátu fundinn undir þessum lið.

5.Ráðhús Akureyrar - vatnstjón

Málsnúmer 2021120737Vakta málsnúmer

Farið yfir lekatjón í Ráðhúsinu á Akureyri.

Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sat fundinn undir þessum lið.

6.Smáverkaútboð 2020

Málsnúmer 2020040458Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 15. desember 2021 varðandi framlengingu á smáverkasamningum frá 2020.

Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fyrir sitt leyti að samningar verði framlengdir um eitt ár.

7.Tryggvabraut - hringtorg við Hvannavelli

Málsnúmer 2021120740Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 15. desember 2021 varðandi útboð á framkvæmdum við Tryggvabraut, Hvannavelli og hringtorg á gatnamótunum.

Sara Ómarsdóttir verkefnastjóri tækni og hönnunar og Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sátu fundinn undir þessum lið.

8.Krókeyri - gatnagerð og lagnir

Málsnúmer 2020080606Vakta málsnúmer

Lögð fram stöðuskýrsla dagsett 29. nóvember 2021 varðandi gatna- og lagnaframkvæmdir við Krókeyri á Akureyri.

Sara Ómarsdóttir verkefnastjóri tækni og hönnunar og Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sátu fundinn undir þessum lið.

9.Fundaáætlun umhverfis- og mannvirkjaráðs 2022

Málsnúmer 2021120728Vakta málsnúmer

Lagt fram fundaplan fyrir byrjun árs 2022.

Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að fyrstu fundir ársins 2022 verði 21. janúar, 28. janúar, 11. febrúar og 25. febrúar.

10.Umhverfis- og mannvirkjasvið - stjórnsýslubreytingar

Málsnúmer 2021120729Vakta málsnúmer

Kynning á fyrirhuguðum stjórnsýslubreytingum á umhverfis- og mannvirkjasviði.

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri og Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra mættu á fundinn og gerðu grein fyrir breytingunum ásamt Guðríði Erlu Friðriksdóttur sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs.
Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar kynninguna.

11.Sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs - áframhaldandi ráðning

Málsnúmer 2021120241Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga bæjarstjóra um áframhaldandi ráðningu Guðríðar Erlu Friðriksdóttur í starf sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs í annað fimm ára tímabil.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir tillögu bæjarstjóra.

Fundi slitið - kl. 10:50.