Umhverfis- og mannvirkjaráð

95. fundur 26. febrúar 2021 kl. 08:15 - 11:15 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Unnar Jónsson
  • Tryggvi Már Ingvarsson
  • Sigurjón Jóhannesson
  • Berglind Bergvinsdóttir
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda
  • Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá
Tryggvi Már Ingvarsson B-lista mætti í forföllum Gunnfríðar Elínar Hreiðarsdóttur.

1.Moldarlosunarsvæði að Jaðri

Málsnúmer 2018010445Vakta málsnúmer

Samningur um losun jarðvegs á Jaðarsvelli, sérfræðiþjónustu og eftirliti með moldarlosunarsvæði lagður fram.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfismála sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagðan samning við Golfklúbb Akureyrar.

2.Skátafélagið Klakkur - söfnunarkassar fyrir einnota umbúðir

Málsnúmer 2021020466Vakta málsnúmer

Tekið fyrir bréf dagsett 6. febrúar 2021 frá Skátafélaginu Klakki varðandi beiðni um að setja upp dósasöfnunarkassa við nokkrar grenndarstöðvar á Akureyri.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfismála sat fundinn undir þessum lið.

3.Trúnaðarmál

Málsnúmer 2021023163Vakta málsnúmer

Fært í trúnaðarbók umhverfis- og mannvirkjaráðs.

4.Holtahverfi - gatnagerð og lagnir

Málsnúmer 2021023068Vakta málsnúmer

Fyrirhugað útboð á hönnun gatnagerðar og lagna í Holtahverfi norður kynnt.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að farið verði í útboð á hönnun í Holtahverfi norður - gatnagerð og lagnir.

5.SVA - leiðakerfi 2020

Málsnúmer 2020020042Vakta málsnúmer

Staða verkefnisins kynnt fyrir ráðinu. Þar á meðal stytting vinnuviku vaktavinnufólks, mögulegar útfærslur á akstri á kvöldin og um helgar og annað sem kemur til skoðunar með rekstrar- og framkvæmdakostnað í huga.

Fundi slitið - kl. 11:15.