Umhverfis- og mannvirkjaráð

86. fundur 02. október 2020 kl. 08:15 - 10:00 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Unnar Jónsson
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Sigurjón Jóhannesson
  • Berglind Bergvinsdóttir
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá

1.Umferðaröryggismál

Málsnúmer 2020020504Vakta málsnúmer

Jónas Valdimarsson verkefnastjóri tækni og hönnunar kynnti áætlaðar framkvæmdir vegna umferðaröryggismála á Skarðshlíðarhringnum.
Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar kynninguna.

2.Leikskólinn Klappir við Glerárskóla

Málsnúmer 2018050021Vakta málsnúmer

Andrea Sif Hilmarsdóttir verkefnastjóri nýframkvæmda kynnti stöðuskýrslu dagsetta 1. október 2020 vegna framkvæmda við byggingu leikskólans.

3.Glerárholt - kaup

Málsnúmer 2019110468Vakta málsnúmer

Stöðuskýrsla dagsett 1. október 2020 vegna endurbóta á Glerárholti lögð fyrir ráðið.

4.Slökkvilið - útboð á stigabíl

Málsnúmer 2019020063Vakta málsnúmer

Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri kom og kynnti niðurstöðu útboðsins.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við Echelles Riffaud SA og felur umhverfis- og mannvirkjasviði að ganga frá málinu.

5.Jörvabyggð 14 - sala eignar

Málsnúmer 2020080610Vakta málsnúmer

Kauptilboð dagsett 24. september 2020 vegna sölu á Jörfabyggð 14 lagt fyrir ráðið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir kauptilboðið með þeim fyrirvörum sem ræddir voru á fundinum.

6.Fjárhagsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs 2021

Málsnúmer 2020080605Vakta málsnúmer

Fjárhagsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs, eignfærsluáætlun og gjaldskrár lagðar fyrir ráðið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fyrir sitt leyti fyrirlagðar fjárhagsáætlanir með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.

Umhverfis- og mannvirkjaráð frestar afgreiðslu gjaldskráa umhverfis- og mannvirkjasviðs.

Umhverfis- og mannvirkjaráð frestar afgreiðslu eignfærsluáætlunar umhverfis- og mannvirkjasviðs.

Fundi slitið - kl. 10:00.