Umhverfis- og mannvirkjaráð

85. fundur 18. september 2020 kl. 08:15 - 11:04 Fundarherbergi UMSA
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Unnar Jónsson
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Sigurjón Jóhannesson
  • Berglind Bergvinsdóttir
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá
Ingibjörg Ólöf Isaksen B-lista mætti í forföllum Gunnfríðar Elínar Hreiðarsdóttur.

1.Umferðaröryggismál - gönguþveranir

Málsnúmer 2020020504Vakta málsnúmer

Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar- og tæknideildar kom og kynnti umferðarljós, gönguljós og umferðaröryggismál í bænum.
Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar Jónasi Valdimarssyni fyrir kynninguna.

2.Naustahverfi VII - Hagar, gatnagerð og lagnir

Málsnúmer 2019110185Vakta málsnúmer

Niðurstaða dómsmáls varðandi gerð Hagahverfis kynnt fyrir ráðinu.

Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.

3.Skógræktarfélag Eyfirðinga - samningur

Málsnúmer 2019090381Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Skógræktarfélagi Eyfirðinga dagsett 8. september 2020 varðandi rekstur félagsins.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð felur umhverfis- og mannvirkjasviði að taka upp viðræður við Skógræktarfélag Eyfirðinga.

4.Fjárhagsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs 2021

Málsnúmer 2020080605Vakta málsnúmer

Áætlun á stöðugildum hjá UMSA lögð fyrir ráðið ásamt eignfærsluáætlun, gjaldskrám UMSA og fjárhagsáætlun umhverfismiðstöðvar.

Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar og Hrafn Svavarsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 133 með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.

Sigurjón Jóhannesson D-lista og Berglind Bergvinsdóttir M-lista sátu hjá við afgreiðsluna.

Umhverfis- og mannvirkjaráð felur umhverfis- og mannvirkjasviði að vinna eignfærsluáætlun áfram í samræmi við umræður á fundinum og þann fjárhagsramma sem er væntanlegur frá bæjarráði.


Umhverfis- og mannvirkjaráð frestar afgreiðslu gjaldskráa til næsta fundar.

Fundi slitið - kl. 11:04.