Umhverfis- og mannvirkjaráð

81. fundur 21. ágúst 2020 kl. 08:15 - 10:20 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Unnar Jónsson
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Sigurjón Jóhannesson
  • Berglind Bergvinsdóttir
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs 2021

Málsnúmer 2020080605Vakta málsnúmer

Lagt fram fjárhagsáætlunarferli fyrir árið 2021.

2.Nökkvi siglingaklúbbur - útboð framkvæmda

Málsnúmer 2015030205Vakta málsnúmer

Lögð fram opnun tilboða í verklegar framkvæmdir dagsett 10. ágúst 2020. Tvö tilboð bárust:






BB Byggingar ehf.
kr. 220.580.389
118%

Sigurgeir Svavarsson ehf. kr. 204.331.986
110%







Kostnaðaráætlun
kr. 186.455.283


Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði Sigurgeirs Svavarssonar ehf með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.

3.Gatnamót Hörgár- og Hlíðarbrautar - endurbætur

Málsnúmer 2020080607Vakta málsnúmer

Lögð fram opnun tilboða í verkið dagsett 6. ágúst 2020. Tvö tilboð bárust:







Finnur ehf.

kr. 63.510.010
101%

Nesbræður ehf.

kr. 49.637.300
79%










Kostnaðaráætlun
kr. 62.904.000


Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði Nesbræðra ehf. með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.

4.Sjafnargata, Hörgárbraut - stígar

Málsnúmer 2020080609Vakta málsnúmer

Lögð fram opnun tilboða í verkið dagsett 6. ágúst 2020. Tvö tilboð bárust:







Finnur ehf.

kr. 32.466.660
76%

Nesbræður ehf.

kr. 28.594.800
67%







Kostnaðaráætlun
kr. 42.686.000


Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði Nesbræðra ehf. með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.

5.Kaupvangsstræti - hellulögn

Málsnúmer 2020080608Vakta málsnúmer

Lögð fram opnun tilboða í verkið dagsett 6. ágúst 2020. Tvö tilboð bárust:







Garður og Hönnun ehf.
kr. 29.492.000
112%

Finnur ehf.

kr. 25.505.270
97%







Kostnaðaráætlun
kr. 26.402.500


Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði Finns ehf. með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.

6.Jörvabyggð 14 - sala eignar

Málsnúmer 2020080610Vakta málsnúmer

Lagt til að eignin verði sett í opinbert söluferli.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að setja húsið í opinbert söluferli með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.

7.Sólvallagata 7 Hrísey - sala eignar

Málsnúmer 2020080611Vakta málsnúmer

Lagt til að eignin verði sett í opinbert söluferli.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að setja húsið í opinbert söluferli með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.

8.Hólasandslína 3 - eftirlit

Málsnúmer 2020020127Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að samningi við Landsnet hf. um kostnað vegna útgáfu framkvæmdaleyfis og eftirlits með framkvæmdum við Hólasandslínu 3 ásamt drögum að kostnaðaráætlun vegna eftirlitsins dagsettum 10. ágúst 2020. Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.

9.Sigurhæðir - breytingar vegna fyrirhugaðrar útleigu

Málsnúmer 2020060921Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað 2 dagsett 5. ágúst 2020 vegna málsins.

10.Lundarskóli - endurbætur á B álmu

Málsnúmer 2020020505Vakta málsnúmer

Rætt um stöðuna á framkvæmdunum og flutningnum á hluta starfseminnar í Rósenborg og Íþróttahöllina.

11.UMSA - viðaukar 2020

Málsnúmer 2020030080Vakta málsnúmer

Lagðar fram beiðnir til bæjarráðs um viðauka vegna framkvæmda í Lundarskóla og flutnings hluta starfseminnar í Rósenborg og Íþróttahöll samtals 150 milljónir króna ásamt viðauka vegna framkvæmda Bílaklúbbs Akureyrar við ofanvatn innan og utan svæðis samtals 9,3 milljónir króna.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir samhljóða að óska eftir viðauka til bæjarráðs vegna framkvæmda í Lundarskóla að upphæð 150 milljónir króna.


Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir með fjórum atkvæðum að óska eftir viðauka til bæjarráðs vegna framkvæmda við ofanvatn innan og utan svæðis hjá Bílaklúbbi Akureyrar að upphæð 9,3 milljónir króna.

Unnar Jónsson S-lista sat hjá við atkvæðagreiðsluna.

Fundi slitið - kl. 10:20.