Umhverfis- og mannvirkjaráð

76. fundur 17. apríl 2020 kl. 08:15 - 11:30 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Unnar Jónsson
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Sigurjón Jóhannesson
  • Berglind Bergvinsdóttir
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhaldsdeildar
  • Hildigunnur Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar
  • Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá

1.Sláttur og hirðing 2020-2021 - útboð

Málsnúmer 2020030732Vakta málsnúmer

Lögð fyrir niðurstaða frá opnun tilboða vegna útboðs.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Adda Tryggva ehf. í slátt og hirðingu í Naustahverfi en að hafna tilboðum í önnur svæði en taka upp viðræður við lægstbjóðanda Leó verktaka ehf. í þau svæði og samningar liggja fyrir.

2.Íþróttahöllin - málning 2020

Málsnúmer 2020030484Vakta málsnúmer

Lögð fyrir niðurstaða frá opnun tilboða vegna útboðs.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði að tilboði Íslenskra málara ehf. eftir að önnur lægri tilboð stóðust ekki kröfur útboðsins.

3.Hákarlasafnið - málning 2020

Málsnúmer 2020030485Vakta málsnúmer

Lögð fyrir niðurstaða frá opnun tilboða vegna útboðs.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að hafna tilboði í verkið eftir að tilboð stóðst ekki kröfur útboðsins.

4.Sundlaug Akureyrar - málning 2020

Málsnúmer 2020030658Vakta málsnúmer

Lögð fyrir niðurstaða frá opnun tilboða vegna útboðs.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði að tilboði Íslenskra málara ehf. eftir að önnur lægri tilboð stóðust ekki kröfur útboðsins.

5.Naustaskóli - málning 2020

Málsnúmer 2020030659Vakta málsnúmer

Lögð fyrir niðurstaða frá opnun tilboða vegna útboðs.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði að tilboði Betri Fagmanna ehf. eftir að önnur lægri tilboð stóðust ekki kröfur útboðsins.

6.Íþróttahús Glerárskóla - málning 2020

Málsnúmer 2020030660Vakta málsnúmer

Lögð fyrir niðurstaða frá opnun tilboða vegna útboðs.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði að tilboði Betri Fagmanna ehf. eftir að önnur lægri tilboð stóðust ekki kröfur útboðsins.

7.Vallartún 2 - málning 2020

Málsnúmer 2020030661Vakta málsnúmer

Lögð fyrir niðurstaða frá opnun tilboða vegna útboðs.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði að tilboði MSM ehf. eftir að önnur lægri tilboð stóðust ekki kröfur útboðsins.

8.Keilusíða 1-3-5 - málning 2020

Málsnúmer 2020030662Vakta málsnúmer

Lögð fyrir niðurstaða frá opnun tilboða vegna útboðs.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði að tilboði MSM ehf. eftir að önnur lægri tilboð stóðust ekki kröfur útboðsins.

9.Götumálun á Akureyri 2020

Málsnúmer 2020040033Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 2. apríl 2020 varðandi götumálun á Akureyri 2020.

Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að samið verði við Vegamálun ehf. um götumálun hjá Akureyrarbæ á árinu 2020.

10.Glerárskóli - endurbætur D-álmu

Málsnúmer 2020010605Vakta málsnúmer

Lögð fyrir niðurstaða frá opnun tilboða vegna útboðs í endurbætur á D-álmu Glerárskóla.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðendur að útboðsgögnum uppfylltum.

11.Lundarskóli - loftgæði í kjallara B-álmu

Málsnúmer 2019110520Vakta málsnúmer

Niðurstaða úttektar dagsettrar 8. apríl 2020 varðandi úttekt Mannvits á A- og B-álmum Lundarskóla kynnt fyrir ráðinu.

12.Loftgæðamál og aðgerðaáætlun í Akureyrarbæ 2018

Málsnúmer 2018110215Vakta málsnúmer

Verklagsreglur í loftgæðamálum lagðar fram til samþykktar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir endurbætta útgáfu verklagsreglna í málefnum loftgæða með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum.

13.Jaðar - umhverfismat á svæðinu

Málsnúmer 2018010445Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 15. apríl 2020 varðandi moldarlosun á Jaðri.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að Akureyrarbær sjái um rekstur á moldarlosunarsvæðinu og felur ráðið umhverfis- og mannvirkjasviði að vinna málið áfram í samráði við golfklúbbinn.

14.Skátagil - leiksvæði

Málsnúmer 2020030625Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 1. apríl 2020 varðandi gerð leiksvæðis í göngugötunni við enda Skátagils.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að farið verði í verkefnið og kostnaður við það verði tekinn af liðnum nýframkvæmdir umhverfismála.

15.Fjárfestingaráætlun og nýframkvæmdir í umhverfismálum 2020

Málsnúmer 2019060039Vakta málsnúmer

Farið yfir breytingar á fjárfestingaráætlun og nýframkvæmdum í umhverfismálum.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að farið verði í þau verkefni sem talin eru upp.

16.Nýting á moltu til ræktunar - atvinnuátaksverkefni vegna COVID-19

Málsnúmer 2020040389Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 8. apríl 2020 varðandi nýtingu á moltu til ræktunnar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð er jákvætt fyrir þátttöku í verkefninu og felur umhverfis- og mannvirkjasviði að útfæra kostnað, verkaskiptingu og skilgreiningu verkefna og bera undir ráðið á næstu dögum.

17.Sandgerðisbót - bygging íbúða

Málsnúmer 2020040029Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 1. apríl 2020 varðandi byggingu íbúða í Sandgerðisbót.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fyrir sitt leyti að bjóða út byggingu tveggja íbúða í Sandgerðisbót.

18.Gránufélagsgata 22 - rif

Málsnúmer 2018120026Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 16. apríl 2020 varðandi rif á húsnæðinu.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að semja við BB byggingar ehf. um rif á húsinu.

19.Brú - Eyjafjarðará vesturkvísl

Málsnúmer 2019110327Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 16. apríl 2020 varðandi stöðu verkefnisins.

20.Hagahverfi - blágrænar ofanvatnslausnir

Málsnúmer 2020040034Vakta málsnúmer

Lagðar fram teikningar af útfærslu á blágrænum ofanvatnslausnum í Hagahverfi.

Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að setja verkefnið í útboð.

21.Glerárskóli - endurbætur D-álmu

Málsnúmer 2020010605Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 16. apríl 2020 vegna vinnu við tengigang D-álmu sem áætlað er að fara í samhliða framkvæmdum á álmunni.
Umhverfis- og mannvirkjaráð óskar eftir því við bæjarráð að fá viðbótarfjárveitingu að upphæð kr. 15.000.000. Færist það inn á framkvæmdaáætlun undir auðkenninu „F31-GLSK_D_ENBA„.

22.Sundlaug Akureyrar - endurnýjun á kvennaklefa og klefa fyrir fatlaða

Málsnúmer 2019020424Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 2. apríl 2020 varðandi endurnýjun á kvennaklefa og klefa fyrir fatlaða í Sundlaug Akureyrar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð óskar eftir því við bæjarráð að fá viðbótarfjárveitingu að upphæð kr. 20.000.000. Færist það inn á framkvæmdaáætlun undir auðkenninu „F31-SUL_AK_FATL„.

Umhverfis- og mannvirkjaráð óskar eftir því við bæjarráð að fá viðbótarfjárveitingu að upphæð kr. 30.000.000. Færist það inn á rekstur: 3100 - 1311300 - 45 - 55560 og dreifist það yfir fyrstu 6 mánuði ársins.

23.Nökkvi siglingaklúbbur - framkvæmdir vegna uppbyggingarsamnings

Málsnúmer 2015030205Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 5. mars 2020 varðandi byggingu þjónustuhúsnæðis Siglingaklúbbsins Nökkva.
Umhverfis- og mannvirkjaráð óskar eftir því við bæjarráð að fá viðbótarfjárveitingu að upphæð kr. 80.000.000. Færist það inn á fjárfestingaráætlun undir auðkenninu „F31-ITH_NOKK_NY„. Skiptist það þannig að kr. 40.000.000 færist á árið 2020 og kr. 40.000.000 á árið 2021.

24.UMSA - viðaukar 2020

Málsnúmer 2020030080Vakta málsnúmer

Lagðir fram viðaukar til samþykktar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð óskar eftir því við bæjarráð að fá viðbótarfjárveitingu að upphæð kr. 15.000.000. Færist það inn á framkvæmdaáætlun undir auðkenninu „F31-GLSK_D_ENBA„.

Umhverfis og mannvirkjaráð óskar eftir því við bæjarráð að fá viðbótarfjárveitingu að upphæð kr. 20.000.000. Færist það inn á framkvæmdaáætlun undir auðkenninu „F31-SUL_AK_FATL„.

Umhverfis og mannvirkjaráð óskar eftir því við bæjarráð að fá viðbótarfjárveitingu að upphæð kr. 30.000.000. Færist það inn á rekstur: 3100 - 1311300 - 45 - 55560 og dreifist þá yfir fyrstu 6 mánuði ársins.

Umhverfis og mannvirkjaráð óskar eftir því við bæjarráð að fá viðbótarfjárveitingu að upphæð kr. 80.000.000. Færist það inn á framkvæmdaáætlun undir auðkenninu „F31-ITH_NOKK_NY„. Skiptist það þannig að kr. 40.000.000 færist á árið 2020 og kr. 40.000.000 á árið 2021.

25.Fjárhagsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs 2020

Málsnúmer 2019060039Vakta málsnúmer

Umræður um breytingar á áætlun vegna COVID-19.

Fundi slitið - kl. 11:30.