Umhverfis- og mannvirkjaráð

72. fundur 07. febrúar 2020 kl. 08:15 - 10:45 Fundarherbergi UMSA
Nefndarmenn
  • Unnar Jónsson varaformaður
  • Jón Þorvaldur Heiðarsson
  • Sigurjón Jóhannesson
  • Berglind Bergvinsdóttir
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
  • Hrafn Svavarsson rekstrarstjóri sva og ferliþjónustu
  • Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhaldsdeildar
Fundargerð ritaði: Dóra Sif Sigtryggsdóttir Forstöðumaður rekstrardeildar
Dagskrá
Jón Þorvaldur Heiðarsson L-lista mætti í forföllum Andra Teitssonar.
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir B-lista boðaði forföll fyrir sig og varamann sinn.

1.SVA - leiðakerfi 2020

Málsnúmer 2020020042Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 5. febrúar 2020 vegna endurskoðunar á leiðakerfi SVA.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að óska eftir því við bæjarráð að stofnaður verði launaður vinnuhópur um endurskoðun á leiðakerfinu.

2.Naustahverfi 7. áfangi - Hagar

Málsnúmer 2017080054Vakta málsnúmer

Lögð fram greinargerð dagsett 24. janúar 2020 um verklok að hluta í gatnagerð, fráveitu-, neysluvatns-, raf- og fjarskiptalagnir í nýbyggingu gatna í 7. áfanga

Naustahverfis á Akureyri.

3.Glerárskóli - endurbætur B álma

Málsnúmer 2019020224Vakta málsnúmer

Lagt fram skilamat vegna framkvæmdanna dagsett 27. janúar 2020.

4.Íþróttahús Glerárskóla - endurbætur og gólf

Málsnúmer 2019010306Vakta málsnúmer

Lagt fram skilamat fyrir framkvæmdina dagsett 5. febrúar 2020.

5.Glerárskóli - endurbætur D álma

Málsnúmer 2020010605Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 6. febrúar 2020 um stöðu verkefnisins.

6.Lundarskóli - loftgæði í kjallara B álmu

Málsnúmer 2019110520Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðuna.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gerð verði úttekt á húsnæði skólans.

7.Árholt - endurbætur og breytingar

Málsnúmer 2019080197Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 23. janúar 2020 vegna skoðunar á einangrun og hita í húsinu.
Afgreiðslu frestað.

8.Umhverfis- og mannvirkjasvið - starfsmannamál

Málsnúmer 2020020045Vakta málsnúmer

Rætt um stöðu starfsmannamála á sviðinu.
Umhverfis- og mannvirkjaráð felur sviðsstjóra að taka saman minnisblað um starfsmannamálin og leggja fram á næsta fundi ráðsins.

9.Glerárholt - kaup

Málsnúmer 2019110468Vakta málsnúmer

Lagt fram gagntilboð dagsett 5. febrúar 2020 frá eiganda.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir kaupin á húsinu fyrir sitt leyti.

10.Leiguíbúðir Akureyrarbæjar 2020

Málsnúmer 2020020125Vakta málsnúmer

Rætt um stöðu leiguíbúða Akureyrarbæjar.

11.Verkfundargerðir 2020

Málsnúmer 2020010277Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:

Eyvest brú: 1. og 2. verkfundur dagsettir 19. desember 2019 og 20. janúar 2020.

Klettaborg 43: 12.- 14. verkfundur dagsettir 28. nóvember og 12. desember 2019 og 9. janúar 2020.

Ráðhús 1. hæð: 1. verkfundur dagsettur 17. desember 2019.

Fundi slitið - kl. 10:45.