Umhverfis- og mannvirkjaráð

66. fundur 11. október 2019 kl. 08:15 - 11:15 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Unnar Jónsson
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Berglind Bergvinsdóttir
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar
  • Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhaldsdeildar
  • Hildigunnur Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá

1.Snjómokstur og hálkuvarnir - útboð 2019

Málsnúmer 2019010353Vakta málsnúmer

Tekin fyrir niðurstaða opnunar tilboða í snjómoksturs- og hálkuvarnarútboði fyrir árin 2019-2022.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði til samninga við eftirfarandi verktaka (skv. meðf. fylgiskjali) að útboðsgögnum uppfylltum í útboði vegna snjómoksturs og hálkuvarna fyrir árin 2019-2022.

2.Holtahverfi

Málsnúmer 2019100187Vakta málsnúmer

Skipulagstillaga fyrir Holtahverfi kynnt.

Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar á umhverfis- og mannvirkjasviði kynnti tillögurnar.

3.Glerárskóli - bygging leikskóla, lóðar, tengibygginga og samkomusals

Málsnúmer 2018050021Vakta málsnúmer

Kostnaðaráætlun vegna byggingar leikskóla við Glerárskóla lögð fram.

4.Óshólmanefnd 2018 - 2022

Málsnúmer 2018090267Vakta málsnúmer

Fundargerð óshólmanefndar dagsett 1. október 2019 lögð fram.
Umhverfis- og mannvirkjaráð tekur undir með óshólmanefnd að brýnt sé að ljúka við deiliskipulag svæðisins.

5.Fagrasíða 7c - sala

Málsnúmer 2019100176Vakta málsnúmer

Lagt fram tilboð sem barst í Fögrusíðu 7c.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga að tilboðinu með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.

6.Strandgata 6 - tilboð

Málsnúmer 2019100177Vakta málsnúmer

Lagt fram tilboð sem barst í Strandgötu 6.
Umhverfis- og mannvirkjaráð hafnar tilboðinu enda sé fyrirhugað að rífa húsið.

7.Brýr yfir Eyjafjarðará

Málsnúmer 2017120110Vakta málsnúmer

Stöðuskýrsla vegna byggingar brúar yfir vesturkvísl Eyjafjarðarár kynnt.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ljúka hönnun og hefja útboðsferli sem fyrst í samstarfi við Landsnet samkvæmt minnisblaði um samlegðaráhrif með lagningu á streng yfir Eyjafjarðará sem borist hefur frá þeim.

8.Gjaldskrár umhverfis- og mannvirkjasviðs 2020

Málsnúmer 2019090332Vakta málsnúmer

Teknar fyrir gjaldskrár umhverfis- og mannvirkjasviðs fyrir árið 2020.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir gjaldskrárnar með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.

9.Fjárhagsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs 2020

Málsnúmer 2019060039Vakta málsnúmer

Teknar fyrir heildaráætlanir fyrir árið 2020 og starfsáætlun UMSA.
Meirihluti umhverfis- og mannvirkjaráðs samþykkir starfsáætlanir umhverfis- og mannvirkjasviðs fyrir árið 2020.



Gunnar Gíslason D-lista og Berglind Bergvinsdóttir M-lista sátu hjá.

Fundi slitið - kl. 11:15.