Umhverfis- og mannvirkjaráð

63. fundur 13. september 2019 kl. 08:15 - 10:15 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Unnar Jónsson
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Gunnar Gíslason
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
  • Hildigunnur Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar
  • Hrafn Svavarsson rekstrarstjóri sva og ferliþjónustu
  • Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála
  • Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhaldsdeildar
  • Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá
Berglind Bergvinsdóttir M-lista boðaði forföll fyrir sig og varamann.

1.Slökkvilið Akureyrar - samstarfssamningur

Málsnúmer 2019090221Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að samstarfssamningi milli SA og BSÞ.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti.

2.SVA - aðstaða fyrir strætó

Málsnúmer 2019020236Vakta málsnúmer

Lögð fram greinargerð verkefnahóps um staðsetningu á miðbæjarbiðstöð Strætisvagna Akureyrar dagsett 5. september 2019.
Umhverfis- og mannvirkjaráð vísar greinargerðinni til umræðu í bæjarráði.

3.Strengjabrú yfir Glerá

Málsnúmer 2019090177Vakta málsnúmer

Lagðar fyrir tillögur að sameiginlegri þverun Glerár á strengjum Rarik, Norðurorku og Landsnets. Einnig gerð göngubrúar á sama stað.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagðar tillögur.

4.UMSA - viðaukar 2019

Málsnúmer 2019090073Vakta málsnúmer

Lagðir fram til annarrar umræðu og samþykktar viðaukar umhverfis- og mannvirkjaráðs.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að óska eftir því við bæjarráð að samþykkja meðfylgjandi viðauka.

5.Rusladallar - staðsetning og fjöldi

Málsnúmer 2019090175Vakta málsnúmer

Ræddar staðsetningar og fjöldi rusladalla í landi Akureyrar.

6.Gæludýr í strætó - breyting á reglugerð um hollustuhætti

Málsnúmer 2019090174Vakta málsnúmer

Tekin fyrir beiðni umhverfis- og auðlindaráðuneytisins á umsögn um drög að breytingu á reglugerð um hollustuhætti um að heimila að gæludýr verði leyfð í almenningsvögnum í þéttbýli að uppfylltum tilteknum skilyrðum.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að veita jákvæða umsögn um reglugerðinna enda gefur hún færi á ýmsum takmörkunum og felur umhverfis- og mannvirkjasviði að senda inn umsögn út frá umræðum á fundinum.

7.Fjárhagsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs 2020

Málsnúmer 2019060039Vakta málsnúmer

Farið yfir fjárhagsáætlunargerð fyrir umhverfis- og mannvirkjasvið.

8.Verkfundargerðir 2019

Málsnúmer 2019010182Vakta málsnúmer

Eftirfarandi fundargerðir lagðar fram á fundinum:

Klettaborg 43: 3. og 4. verkfundur dagsettir 13. og 27. júní 2019.

Glerárskóli b álma: 5. og 6. verkfundur dagsettir 10. og 23. júlí 2019.

Íþróttahús Lundarskóla: 1. og 2. verkfundur dagsettir 25. júlí og 14. ágúst 2019.

Fundi slitið - kl. 10:15.