Umhverfis- og mannvirkjaráð

59. fundur 05. júlí 2019 kl. 08:15 - 10:00 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Unnar Jónsson
  • Gunnar Gíslason
  • Berglind Bergvinsdóttir
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda
  • Guðný Skúladóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Guðný Skúladóttir Fundarritari
Dagskrá

1.Brýr yfir Eyjafjarðará

Málsnúmer 2017120110Vakta málsnúmer

Staða verkefnisins kynnt.

Hrafn Svavarsson rekstarstjóri SVA sat fundinn undir þessum lið.

2.SVA - sala auglýsinga á strætisvagna í eigu Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2017020079Vakta málsnúmer

Teknar fyrir reglur varðandi auglýsingar á strætisvögnum Akureyrarbæjar.

Hrafn Svavarsson rekstarstjóri SVA sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að opna fyrir að einkaaðilar kaupi auglýsingar á strætisvagna og biðskýli enda standist það að öðru leyti samþykktar reglur um auglýsingar á strætisvagna Akureyrarbæjar.

3.Umhverfismiðstöð - staðan 2019

Málsnúmer 2019060633Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðuna á Umhverfismiðstöð, starfsfólk og rekstur.

Hrafn Svavarsson rekstarstjóri SVA sat fundinn undir þessum lið.

4.Grímsey og Hrísey - ráðstöfun fjármuna

Málsnúmer 2019060634Vakta málsnúmer

Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfis- og sorpmála fór yfir ráðstöfun fjármuna sem ákveðið var að hverfisráðin í Hrísey og Grímsey fengju til ráðstöfunar í framkvæmdir.

5.Endurbætur á bílaplani Hjalteyrargötu 12 - styrkur

Málsnúmer 2019070147Vakta málsnúmer

Björgunarsveitin Súlur óskar eftir að Akureyrarbær komi að framkvæmd við bílaplan við Hjalteyrargötu 12.

Á sínum tíma, þegar aðkoman sunnan og vestan við húsið var lagfærð kom Akureyrarbær til móts við Súlur með myndarlegum hætti, ekki í formi peningastyrks heldur með vinnuframlagi og efni. Í meðfylgjandi kostnaðaráætlun kemur fram að fínjöfnun og malbikun er stór hluti af kostnaði þessa verks og þess er því hér með óskað að Akureyrarbær styrki Súlur á sama máta og seinast, með því að leggja til efni og vinnu við ofangreinda verkþætti auk uppsteypu kantsteina.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að vísa erindinu til bæjarráðs.

Fundi slitið - kl. 10:00.