Umhverfis- og mannvirkjaráð

58. fundur 21. júní 2019 kl. 08:15 - 10:15 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Unnar Jónsson
  • Berglind Bergvinsdóttir
  • Ólafur Kjartansson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá
Gunnar Gíslason D-lista boðaði forföll fyrir sig og varamann.
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir B-lista mætti í forföllum Ingibjargar Ólafar Isaksen.
Ólafur Kjartansson áheyrnarfulltrúi V-lista mætti í forföllum Jönu Salóme I. Jósepsdóttur.

1.Verkfundargerðir 2019

Málsnúmer 2019010182Vakta málsnúmer

Eftirfarandi fundargerðir lagðar fram á fundinum:

Klettaborg 43: 2. verkfundur dagsettur 12. júní 2019.

Sorpmál framtíðarsýn: 5.- 10. fundur verkefnisliðs dagsettir 21. janúar, 6. og 27. febrúar, 3. og 17. apríl og 6. maí 2019.

Glerárskóli b álma: 1.- 5. hönnunarfundur dagsettir 31. janúar, 12. og 26. mars, 1. og 4. apríl 2019.

Glerárskóli b álma: 1. og 2. verkfundur dagsettir 14. og 28. maí 2019.

Geymslumál Sundlaug Akureyrar: 2. fundur dagsettur 13. júní 2019.

2.Velferðarstefna 2018-2023

Málsnúmer 2018081103Vakta málsnúmer

Karólína Gunnarsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs og Laufey Þórðardóttir settur sviðsstjóri búsetusviðs komu og kynntu innihald velferðarstefnu Akureyrarbæjar vegna áranna 2018-2023 fyrir ráðinu.
Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar kynninguna.

3.Grenndarstöð í Hagahverfi

Málsnúmer 2019060310Vakta málsnúmer

Lagt til að setja upp nýja grenndarstöð í Hagahverfi. Áætlaður kostnaður er kr. 5,2 milljónir.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir uppsetningu grenndarstöðvar í Hagahverfi enda rúmist það innan málaflokksins.

4.Kynningar og fræðsla - umhverfismál

Málsnúmer 2019060311Vakta málsnúmer

Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfis- og sorpmála og Rakel Guðmundsdóttir verkefnastjóri umhverfis- og sorpmála kynntu þau verkefni sem eru í gangi.
Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar kynninguna.

5.Húsaleiguáætlun 2020

Málsnúmer 2019060039Vakta málsnúmer

Húsaleiguáætlun fyrir árið 2020 kynnt.

Fundi slitið - kl. 10:15.