Umhverfis- og mannvirkjaráð

57. fundur 07. júní 2019 kl. 08:15 - 11:15 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Unnar Jónsson
  • Gunnar Gíslason
  • Berglind Bergvinsdóttir
  • Ólafur Kjartansson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála
  • Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhaldsdeildar
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda
  • Jónas Vigfússon forstöðumaður umhverfismiðstöðvar
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá
Ingibjörg Ólöf Isaksen B-lista boðaði forföll fyrir sig og varamann.
Ólafur Kjartansson V-lista mætti í forföllum Jönu Salóme I. Jósepsdóttur áheyrnarfulltrúa.

1.Stígakerfi Akureyrar - aðalskipulagsbreyting

Málsnúmer 2018020129Vakta málsnúmer

Arnar Birgir Ólafsson hjá Teiknistofu Norðurlands kynnti stöðu mála vegna vinnu við endurskoðun á stefnu um stígakerfi innan sveitarfélagsins.
Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar Arnari fyrir kynninguna.

2.Gangstígum verði skipt í tvennt fyrir hjólaumferð og gangandi vegfarendur

Málsnúmer 2019050453Vakta málsnúmer

Bæjarráð hefur á fundi sínum 23. maí 2019 vísað 10. lið fundargerðar viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsettri 16. maí 2019 til umhverfis- og mannvirkjaráðs:

Bæjarbúi kom í viðtalstíma. Hann óskar eftir því að gangstígum verði skipt í tvennt og að gangandi vegfarendur verði öðrum megin og hjólreiðafólk hinum megin til þess að tryggja öryggi. Leggur líka til að það verið gert átak í að minna hjólreiðafólk á að nota bjöllur.
Umhverfis- og mannvirkjaráð vísar málinu til skipulagssviðs og inn í vinnu við endurskoðun á stefnu um stígakerfi innan sveitarfélagsins.

3.Gámaþjónustan - umgengni 2019 - aðgerðaráætlun

Málsnúmer 2019060035Vakta málsnúmer

Kynnt aðgerðaráætlun Gámaþjónustu Norðurlands sem miðar að bættri umgengni og ásýnd á lóð fyrirtækisins á Hlíðarvöllum.
Umhverfis- og mannvirkjaráð leggur áherslu á að Gámaþjónustan hrindi aðgerðaráætlun í framkvæmd og klári fyrir lok ágúst 2019. Einnig er farið fram á að fyrirtækið starfi í samræmi við verksamning, skipulag og starfsleyfi. Staðan verður endurmetin í ágúst 2019.

4.Umferðartalningar 2019

Málsnúmer 2019060008Vakta málsnúmer

Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar á umhverfis- og mannvirkjasviði kynnti samantekt umferðartalningar úr sjálfvirkum teljurum á og við Þingvallastræti.
Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar Jónasi fyrir kynninguna.

5.Bílaklúbbur Akureyrar - drenun svæðis

Málsnúmer 2018010434Vakta málsnúmer

Tekin fyrir ósk Ólafs Kjartanssonar áheyrnarfulltrúa V-lista um endurmat á framkvæmdaþörf ofan bílaklúbbssvæðisins vegna nýrra upplýsinga um fyrirhugaða skógrækt norðan Glerár. Þar eru nefnd Græni trefillinn og rannsóknir RALA og Skógræktar ríkisins um áhrif skóga á vatnafar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð bendir á að framkvæmdinni er að mestu lokið og verður því ekki breytt. Full ástæða sé hins vegar til þess að taka mið af þessum ábendingum við aðrar framkvæmdir í bæjarlandinu í framtíðinni.

6.Aksturssvæði við Hlíðarfjallsveg - umgengni vélhjólamanna KKA

Málsnúmer 2018120029Vakta málsnúmer

Tekin fyrir umgengni í gili við jaðar KKA svæðisins norðan við skotsvæðið í Hlíðarfjalli.
Umhverfis- og mannvirkjaráð vísar málinu til umhverfis- og mannvirkjasviðs og skipulagssviðs og óskar eftir því að lóðaleigusamningar við KKA verði kláraðir. Þar verði skilgreind notkun á svæðinu þar sem hún uppfylli þarfir KKA og með hliðsjón af varðveislu náttúru. Einnig er sviðunum falið að upplýsa KKA um að hætta öllum akstri á viðkvæmustu svæðunum s.s. gilinu þar til samningar hafa verið kláraðir.

7.Aðgerðaráætlun - skógarkerfill, slaskalúpína og bjarnarkló

Málsnúmer 2019060103Vakta málsnúmer

Lögð fram aðgerðaráætlun um heftingu á útbreiðslu skógarkerfils og alaskalúpínu á Akureyri og í Hrísey og eyðingu bjarnarklóar á Akureyri.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir aðgerðaráætlunina.

8.Hundahald í Grímsey

Málsnúmer 2019060010Vakta málsnúmer

Tekin fyrir ósk um tímabundna undanþágu frá hundabanni í Grímsey frá 5. júní til 23. júní 2019.
Umhverfis- og mannvirkjaráð synjar undanþágunni fyrir sitt leyti á þeim forsendum að á tímabilinu sem óskað er eftir er mikill varptími í Grímsey. Ráðið leggur til að reglur um bann við hundahaldi verði teknar upp á almennum íbúafundi og málið rætt á þeim vettvangi.

9.Akstursþjónusta Akureyrarbæjar - reglur

Málsnúmer 2019040309Vakta málsnúmer

Kynnt drög að reglum um akstursþjónustu Akureyrarbæjar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð felur sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs að koma ábendingum ráðsins vegna umræðna á fundinum til hlutaðeigandi aðila.

10.Umhverfismiðstöð - gjaldskrár

Málsnúmer 2018090053Vakta málsnúmer

Lagðar fyrir ráðið til samþykktar gjaldskrár Umhverfismiðstöðvar, malbikunarstöðvar og ræktunarstöðvar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagðar gjaldskrár.

11.Árholt - endurbætur

Málsnúmer 2019050405Vakta málsnúmer

Lagður fram áætlaður kostnaður við nauðsynlegar endurbætur á Árholti svo starfsemi ungbarnaleikskóla geti hafist þar 1. september 2019.
Meirihluti umhverfis- og mannvirkjaráðs samþykkir að farið verði í framkvæmdirnar og óskar eftir viðauka við bæjarráð að upphæð kr. 20 milljónir.

Gunnar Gíslason D-lista og Berglind Bergvinsdóttir M-lista sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.

Gunnar Gíslason D-lista óskar bókað:

Ég hafna því að óskað sé eftir viðauka og tel að fræðsluráð eigi að sækja um viðauka vegna framkvæmda sem fræðsluráð óskar eftir og eru ekki inni á framkvæmdaáætlun. Enda sé ekki svigrúm fyrir framkvæmdinni með tilfærslum innan fjárhagsáætlunar umhverfis- og mannvirkjasviðs.

12.Glerárskóli - endurbætur B-álma - búnaður

Málsnúmer 2019020224Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni fræðsluráðs vegna búnaðarkaupa vegna endurbóta á B-álmu Glerárskóla.
Meirihluti umhverfis- og mannvirkjaráðs samþykkir búnaðarkaupin og að fjárveiting verði færð til í Framkvæmdayfirliti Akureyrarbæjar 2019-2022 fyrir árið 2019, frá lið "104- Fræðslu- og uppeldismál - Lundarskóli - leikskóli" yfir í búnaðarkaup undir lið "121- Sameiginlegur kostnaður" samtals kr. 20 milljónir. Liðurinn stofnbúnaður hækkar því úr kr. 60 milljónum í kr. 80 milljónir og Lundarskóli leikskóli lækkar úr kr. 20 milljónum í kr. 0.

Gunnar Gíslason D-lista óskar bókað:

Ég samþykki erindið um að það verði farið í búnaðarkaup vegna Glerárskóla en hafna því að liðurinn Lundarskóli leikskóli verði lækkaður úr kr. 20 milljónir í kr. 0. Þar með tel ég að það sé verið að draga fyrirhugaðar byggingaframkvæmdir á nýjum leikskóla við Lundarskóla um of á langinn.

13.Brýr yfir Eyjafjarðará

Málsnúmer 2017120110Vakta málsnúmer

Lagt fram opnunarblað vegna verðkönnunar í hönnun á brú yfir Eyjafjarðará.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka verðtilboði lægstbjóðanda að skilyrðum útboðsgagna uppfylltum.

14.Velferðarstefna 2018-2023

Málsnúmer 2018081103Vakta málsnúmer

Velferðarráð óskar eftir því að umhverfis- og mannvirkjaráð geri tillögur til velferðarráðs að aðgerðaáætlun vegna þeirra verkefna í velferðarstefnu Akureyrarbæjar er heyra undir þeirra svið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð felur sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs að ræða við þá sviðsstjóra sem heyra undir velferðarráð til þess að skýra betur til hvers sé ætlast af umhverfis- og mannvirkjaráði í þessari vinnu.

15.Stöðuskýrslur rekstrar UMSA 2019

Málsnúmer 2019030350Vakta málsnúmer

Lögð fram stöðuskýrsla rekstrar umhverfis- og mannvirkjasviðs fyrir fyrstu fjóra mánuði ársins.

16.Fjárhagsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs 2020

Málsnúmer 2019060039Vakta málsnúmer

Lagður fyrir fjárhagsrammi vegna vinnu við fjárhagsáætlun fyrir árið 2020.

Fundi slitið - kl. 11:15.