Umhverfis- og mannvirkjaráð

53. fundur 01. apríl 2019 kl. 08:15 - 10:15 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Unnar Jónsson
  • Gunnar Gíslason
  • Berglind Bergvinsdóttir
  • Ólafur Kjartansson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá
Unnar Jónsson S-lista mætti í forföllum Ólínu Freysteinsdóttur.
Ólafur Kjartansson V-lista mætti í forföllum Jönu Salóme I. Jósepsdóttur.

1.Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna - innleiðing

Málsnúmer 2014030109Vakta málsnúmer

Alfa Aradóttir deildarstjóri forvarna- og frístundadeildar og Bryndís Elfa Valdemarsdóttir verkefnastjóri á skrifstofu samfélagssviðs kynntu aðgerðaáætlun vegna innleiðingar Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna á Akureyri 2018-2019.

Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.

2.Akstur fyrir fatlaða - útboð

Málsnúmer 2019030363Vakta málsnúmer

Lagt fyrir minnisblað dagsett 26. mars 2019 þar sem óskað er eftir heimild umhverfis- og mannvirkjaráðs til þess að bjóða út þjónustu ferliþjónustubíla, sem geta flutt hjólastóla og þá bæði með bílstjóra og einnig án bílstjóra þegar á þarf að halda.

Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að að bjóða út þjónustu ferliþjónustubíla, sem geta flutt hjólastóla og þá bæði með bílstjóra og án bílstjóra þegar á þarf að halda.

3.Aðvörunarlímmiðar á sorptunnur

Málsnúmer 2019030348Vakta málsnúmer

Helgi Pálsson frá Gámaþjónustu Norðurlands mætti á fundinn og kynnti verkefnið.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála og Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfis- og sorpmála sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir notkun aðvörunarlímmiða á sorptunnur samkvæmt umhverfis- samgöngustefnu Akureyrarbæjar.

4.Endurnýjun á körfubíl Slökkviliðs Akureyrar

Málsnúmer 2019020063Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 26. mars 2019 varðandi kaup á körfubíl og kaupin kynnt.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála og Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að vísa erindinu til bæjarráðs.

5.Fráveita - skilgreiningar á regnvatnskerfum

Málsnúmer 2019030369Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 25. mars 2019 þar sem fráveitukerfi eru skilgreind.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála og Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkaráð samþykkir að leitað verði eftir samtali við stjórn Norðurorku um kostnaðarskiptingu og skilgreiningu á fráveitukerfum.

6.Vistorka - staða, hlutverk og framtíðarsýn

Málsnúmer 2018090196Vakta málsnúmer

Lögð fyrir drög að samkomulagi við Vistorku.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála og Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fyrirliggjandi samning við Vistorku og óskar eftir viðauka upp á 5 milljónir kr. vegna hans.

7.Íþróttamiðstöð Giljaskóli - anddyri stækkun

Málsnúmer 2018060411Vakta málsnúmer

Lagt fram skilamat framkvæmda við anddyri íþróttamiðstöðvar Giljaskóla.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála og Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda sátu fundinn undir þessum lið.

8.Þórunnarstræti 99 - stækkun á svölum og heitur pottur

Málsnúmer 2017050013Vakta málsnúmer

Lagt fram skilamat dagsett 19. febrúar 2019 vegna stækkunar á svölum og uppsetningu á heitum potti.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála og Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda sátu fundinn undir þessum lið.

9.Jafnréttisstefna - skipan þróunarleiðtoga

Málsnúmer 2018110171Vakta málsnúmer

Samkvæmt Jafnréttistefnu Akureyrarbæjar skal hvert ráð velja sér þróunarleiðtoga jafnréttismála sem hefur m.a. það hlutverk að vera formlegur málsvari kynjasamþættingar í starfi viðkomandi ráðs.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála og Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að Berglind Bergvinsdóttir M-lista verði þróunarleiðtogi jafnréttismála.

10.Búnaðarkaup vegna MAk

Málsnúmer 2019020414Vakta málsnúmer

Lögð fyrir ráðið beiðni Menningarfélags Akureyrar til búnaðarkaupa fyrir árið 2019.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála og Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að veita Menningarfélagi Akureyrar 10 milljónir kr. til kaupa á ljósabúnaði í Hof.

11.Hlíð - endurnýjun á lyftu Víði- og Furuhlíð

Málsnúmer 2018030260Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 29. mars 2019 varðandi endurnýjun lyftu í Hlíð.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála og Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir endurnýjun á lyftu og 10 milljón kr. hlutdeild Akureyrarbæjar í kostnaði verður tekin af liðnum „Hlíð endurbætur á eldra húsnæði“ í fjárfestingaráætlun í 3100.

12.Yfirbræðslur 2019

Málsnúmer 2019030370Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 28. mars 2019 þar sem teknar eru saman áætlaðar yfirbræðslur á árinu 2019.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála og Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir áætlaðar yfirbræðslur á árinu 2019.

13.Húsnæðisáætlun Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2019020182Vakta málsnúmer

Húsnæðisáætlun Akureyrarbæjar kynnt fyrir ráðinu.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála og Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda sátu fundinn undir þessum lið.

14.Samantekt ástands húsnæðis Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2019030349Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 29. mars 2019 varðandi samantekt á ástandi eigna Akureyrarbæjar.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála og Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda sátu fundinn undir þessum lið.

15.EFS - með hvaða hætti standa sveitarfélög að eftirliti og framkvæmd fjárfestinga á árinu 2019

Málsnúmer 2019030295Vakta málsnúmer

Liður 4 í fundargerð bæjarráðs 27. mars 2019.

Erindi dagsett 18. mars 2019 frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga þar sem greint er frá því að nefndin hafi ákveðið að taka til umfjöllunar með hvaða hætti sveitarfélög standa að eftirliti og framkvæmd fjárfestinga á árinu 2019. Í þessu samhengi mun nefndin óska eftir yfirliti um stöðu einstakra verkefna í árslok 2019.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir með 5 samhljóða atkvæðum að fela sviðsstjóra fjársýslusviðs að kynna efni bréfsins fyrir stjórn Hafnasamlags Norðurlands, stjórn Norðurorku hf., stjórn Fallorku ehf. og umhverfis- og mannvirkjaráði.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála og Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda sátu fundinn undir þessum lið.

Fundi slitið - kl. 10:15.