Umhverfis- og mannvirkjaráð

51. fundur 01. mars 2019 kl. 08:15 - 11:15 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen fundarstjóri
  • Jón Þorvaldur Heiðarsson
  • Unnar Jónsson
  • Gunnar Gíslason
  • Berglind Bergvinsdóttir
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá
Unnar Jónsson S-lista mætti í forföllum Ólínu Freysteinsdóttur.
Jón Þorvaldur Heiðarsson L-lista mætti í forföllum Andra Teitssonar.
Ingibjörg Ólöf Isaksen B-lista stýrði fundinum í fjarveru formanns og varaformanns.

1.Umhverfis- og samgöngustefna Akureyrarbæjar - verkefni UMSA

Málsnúmer 2018080975Vakta málsnúmer

Lagt fyrir minnisblað dagsett 21. febrúar 2019 og tekin fyrir staða á verkefnum umhverfis- og samgöngustefnu.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála, Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfis- og sorpmála, Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar og Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri sátu fundinn undir þessum lið.

2.Verkefnahópur um framtíðarstaðsetningu miðbæjarbiðstöðvar SVA

Málsnúmer 2019020236Vakta málsnúmer

Lagt fyrir erindisbréf vegna verkefnahóps um framtíðarstaðsetningu miðbæjarbiðstöðvar SVA.

Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar og Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð skipar Unnar Jónsson S-lista og Jönu Salóme I. Jósepsdóttur V-lista í verkefnahópinn.

3.Hljóðveggir við hringtorg Borgarbraut/Bugðusíðu

Málsnúmer 2015030234Vakta málsnúmer

Lagt fram skilamat dagsett 27. febrúar 2019 varðandi hljóðveggi við hringtorg á gatnamótum Borgarbrautar og Bugðusíðu.

Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar og Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri sátu fundinn undir þessum lið.

4.Smáverkaútboð 2019

Málsnúmer 2019020412Vakta málsnúmer

Lagt fyrir minnisblað dagsett 28. janúar 2019 vegna smáverkaútboðs og mögulegrar framlengingar samninga.

Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar og Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fyrir sitt leyti að framlengja samninga til eins árs.

5.Slökkvilið - byggðasamlag

Málsnúmer 2019020413Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 28. febrúar 2019 varðandi mögulegt samstarf slökkviliða á Eyjafjarðarsvæðinu.

Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri sat fundinn undir þessum lið.

6.Slökkvilið - tækjakaup 2019

Málsnúmer 2019020063Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 28. febrúar 2019 varðandi kostnað við uppfærslu á dælubíl.

Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri sat fundinn undir þessum lið.

7.Naustaskóli 6. áfangi - lóð

Málsnúmer 2017020140Vakta málsnúmer

Lagt fram skilamat dagsett 1. mars 2019 varðandi framkvæmd á lóð Naustaskóla.

8.Hlíðarskóli - stækkun 2018

Málsnúmer 2018110138Vakta málsnúmer

Lagt fram fyrir ráðið skilamat dagsett 26. febrúar 2019 á framkvæmdum við Hlíðarskóla.

9.Glerárskóli - bygging leikskóla, lóðar, tengibygginga og samkomusals

Málsnúmer 2018050021Vakta málsnúmer

Kynnt staða málsins.

10.Búnaðarkaup vegna fræðsluráðs

Málsnúmer 2019020414Vakta málsnúmer

Lögð fyrir ráðið beiðni fræðsluráðs til búnaðarkaupa fyrir árið 2019.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir beiðni fræðsluráðs til búnaðarkaupa að upphæð kr. 36,2 milljónir.

11.Búnaðarkaup vegna frístundaráðs

Málsnúmer 2019020414Vakta málsnúmer

Lögð fyrir ráðið beiðni frístundaráðs til búnaðarkaupa fyrir árið 2019.
Umhverfis- og mannvirkjaráð felur sviðsstjóra að afla frekari upplýsinga.

12.Hlíðarfjall - kaup á snjósleða

Málsnúmer 2017090010Vakta málsnúmer

Lögð fyrir beiðni frístundaráðs dagsett 25. febrúar 2019 varðandi kaup á snjósleða í Hlíðarfjall.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir kaupin og færist það af liðnum ýmis tæki og búnaður í Eignarsjóði gatna o.fl.

13.Stöðuskýrslur rekstrar UMSA 2018

Málsnúmer 2018050084Vakta málsnúmer

Lögð fyrir stöðuskýrsla rekstrar fyrir árið 2018.

14.Starfsáætlanir 2019

Málsnúmer 2018080973Vakta málsnúmer

Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir starfsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs fyrir árið 2019.

15.Jafnréttisstefna - skipan þróunarleiðtoga

Málsnúmer 2018110171Vakta málsnúmer

Samkvæmt Jafnréttistefnu Akureyrarbæjar skal hvert ráð velja sér þróunarleiðtoga jafnréttismála sem hefur m.a. það hlutverk að vera formlegur málsvari kynjasamþættingar í starfi viðkomandi ráðs.
Umhverfis- og mannvirkjaráð frestar afgreiðslu málsins og óskar eftir því að starfsmaður samfélagssviðs komi inn á fund umhverfis- og mannvirkjaráðs og kynni málið.



Jana Salóme I. Jósepsdóttir V-lista, Gunnar Gíslason D-lista og Berglind Bergvinsdóttir M-lista óska bókað:

Þróun jafnréttismála hjá Akureyrarbæ er mikilvægt og allt um lykjandi verkefni. Því er eðlilegt að launaður starfsmaður hafi umsjón með málaflokknum frekar en að kjörnir fulltrúar taki að sér verkefnið í sjálfboðavinnu.

16.Þjónustukönnun Gallup 2018 - kynning í ráðum

Málsnúmer 2019020200Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar þjónustukönnun sem Gallup gerði í 19 stærstu sveitarfélögum landsins í lok árs 2018.

Fundi slitið - kl. 11:15.