Umhverfis- og mannvirkjaráð

44. fundur 09. nóvember 2018 kl. 08:15 - 11:30 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Jóhann Jónsson
  • Gunnar Gíslason
  • Berglind Bergvinsdóttir
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda
  • Hildigunnur Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar
Dagskrá
Ingibjörg Ólöf Isaksen B-lista boðaði forföll fyrir sig og varamann sinn.
Jana Salóme I. Jósepsdóttir V-lista boðaði forföll fyrir sig og varamann sinn.
Berglind Bergvinsdóttir M-lista mætti í forföllum Jóhönnu Sólrúnar Norðfjörð.

1.Ráðhústorg - hönnun og framkvæmdir

Málsnúmer 2018110059Vakta málsnúmer

Arnar Birgir Ólafsson landslagsarkitekt hjá Teiknistofu Norðurlands slf. mætti á fundinn og kynnti stöðu hönnunar á Ráðhústorginu.

Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála sat fundinn undir þessum lið.

2.Jólaskreytingar í bæjarlandinu

Málsnúmer 2018110058Vakta málsnúmer

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála fór yfir jólaskreytingar í bæjarlandinu fyrir jólin 2018.

Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála sat fundinn undir þessum lið.

3.Snjómokstur og hálkuvarnir - aðgerðarhópur

Málsnúmer 2017010549Vakta málsnúmer

Lagt fram uppfært snjómokstursskipulag í bænum fyrir veturinn 2018-2019 þar sem Hagahverfi bætist við. Skipulagið má finna á heimasíðu Akureyrarbæjar á slóðinni: http://www.map.is/akureyri/ og setja hak í vetrarþjónusta.

Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagt snjómokstursskipulag fyrir veturinn 2018-2019.

4.Hamrar - framkvæmdaþörf á tjaldsvæðinu

Málsnúmer 2018100339Vakta málsnúmer

Lagt var til á síðasta fundi ráðsins að skipaður yrði vinnuhópur vegna framtíðarsýnar tjaldsvæðanna og endurnýjunar rekstrarsamnings við Skátafélagið Klakk. Skipa þarf fulltrúa ráðsins í vinnuhópinn.
Umhverfis- og mannvirkjaráð skipar Jóhann Jónsson S-lista sem fulltrúa ráðsins í vinnuhópinn.

5.Skjaldarvík - framlenging leigusamnings

Málsnúmer 2018110055Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Ólafs Aðalgeirssonar fyrir hönd Concept ehf. um framlengingu leigusamnings húseigna í Skjaldarvík.
Umhverfis- og mannvirkjaráð frestar afgreiðslu erindisins og felur sviðsstjóra að vinna málið frekar í ljósi umræðna á fundinum.

6.Umhverfis- og mannvirkjasvið - starfsmannamál

Málsnúmer 2017050113Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar samantekt á yfirvinnu í hlutfalli við dagvinnu á umhverfis- og mannvirkjasviði.

7.Umhverfis- og mannvirkjasvið - húsnæðismál

Málsnúmer 2017050072Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 8. nóvember 2018 vegna húsaleigu Umhverfismiðstöðvar á Rangárvöllum ásamt framtíðarsýn á svæðinu.

Einnig lögð fram drög að húsaleigusamningi við Norðurorku hf. dagsett 8. nóvember 2018.

Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð felur sviðsstjóra og forstöðumanni Umhverfismiðstöðvar að ganga frá samningnum í samræmi við umræður á fundinum.

8.Fjárhagsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs 2019

Málsnúmer 2018080973Vakta málsnúmer

Unnið áfram að nýframkvæmdaáætlun áranna 2019-2021.

Fundi slitið - kl. 11:30.