Umhverfis- og mannvirkjaráð

40. fundur 21. september 2018 kl. 08:15 - 11:00 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Jóhann Jónsson
  • Gunnar Gíslason
  • Jóhanna Sólrún Norðfjörð
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
  • Jónas Vigfússon forstöðumaður umhverfismiðstöðvar
  • Hildigunnur Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar
Fundargerð ritaði: Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar
Dagskrá

1.Ráðhús - breytingar á 4. hæð

Málsnúmer 2018010435Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 18. september 2018 vegna breytinga á skrifstofu umhverfis- og mannvirkjasviðs.

2.Óshólmanefnd 2018 - 2022

Málsnúmer 2018090267Vakta málsnúmer

Tilnefning tveggja fulltrúa til setu í Óshólmanefndinni.
Umhverfis- og mannvirkjaráð tilnefnir Dagbjörtu Pálsdóttur S-lista og Ólaf Kjartansson V-lista til setu í nefndinni.

3.Sorpmál Akureyrarbæjar - framtíðarsýn

Málsnúmer 2018080972Vakta málsnúmer

Lagt til að skipaður verði launaður fimm manna vinnuhópur um framtíðarsýn í sorpmálum Akureyrarbæjar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð tilnefnir Andra Teitsson L-lista og Jönu Salóme I. Jósepsdóttur V-lista til setu í vinnuhópnum. Ráðið óskar eftir tilnefningu fulltrúa frá bæjarráði, Vistorku og Moltu.

4.Slökkvilið Akureyrar - gjaldskrá 2019

Málsnúmer 2018090279Vakta málsnúmer

Lögð fram gjaldskrá ársins 2019 ásamt minnisblaði og greinargerð dagsettri 17. september 2018.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagða gjaldskrá fyrir sitt leyti og vísar henni til afgreiðslu í bæjarráði.

5.Umhverfis- og mannvirkjasvið - gjaldskrár 2019

Málsnúmer 2018090053Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 19. september 2018 vegna gjaldskrárbreytingar hundaleyfis, kattaleyfis, búfjárleyfis, sorphreinsunargjalda, fastleigustæða og stöðubrota, leigulanda, múrbrots og malbiksbrots.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagða gjaldskrá fyrir sitt leyti og vísar henni til afgreiðslu í bæjarráði.

6.Fjárhagsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs 2019

Málsnúmer 2018080973Vakta málsnúmer

Unnið að fjárhagsáætlun 2019 fyrir umhverfis- og mannvirkjasvið.

Fundi slitið - kl. 11:00.