Umhverfis- og mannvirkjaráð

38. fundur 31. ágúst 2018 kl. 08:15 - 10:30 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Jóhann Jónsson varaformaður
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Jón Þorvaldur Heiðarsson
  • Gunnar Gíslason
  • Jóhanna Sólrún Norðfjörð
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
  • Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhaldsdeildar
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda
  • Hildigunnur Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar
Fundargerð ritaði: Dóra Sif Sigtryggsdóttir Forstöðumaður rekstrardeildar
Dagskrá
Jón Þorvaldur Heiðarsson L-lista mætti í forföllum Andra Teitssonar.

1.Slökkvilið Akureyrar - starfsmannamál

Málsnúmer 2018080971Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 29. ágúst 2018 vegna fjölgunar starfsmanna í varðliði Slökkviliðs Akureyrar.

Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að fjölga um 3 stöðugildi í varðliði Slökkviliðs Akureyrar.

2.Hrísey - efnisvinnsla

Málsnúmer 2018070376Vakta málsnúmer

Lögð fram tilboð sem bárust í efnisvinnslu í Hrísey. Alls bárust tvö tilboð frá tveimur aðilum:

GV Gröfur ehf. kr. 39.710.000 121%

Skútaberg ehf. kr. 39.580.000 120%

Kostnaðaráætlun kr. 32.890.000
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga að tilboði lægstbjóðanda, Skútabergs ehf.

3.Fjárhagsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs 2019

Málsnúmer 2018080973Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 28. ágúst 2018 vegna áætlunar húsa- og lausafjárleigu ársins 2019.

4.Skautafélag Akureyrar - endurnýjun gáma við Skautahöll

Málsnúmer 2018080410Vakta málsnúmer

Frístundaráð hefur á fundi sínum þann 22. ágúst 2018 óskað eftir umsögn frá umhverfis- og mannvirkjaráði vegna beiðnar Skautafélags Akureyrar um kaup á nýjum gámum við Skautahöll í stað þeirra eldri sem fyrir eru.
Umhverfis- og mannvirkjaráð frestar að gefa umsögn þar til frekari gögn liggja fyrir.

5.Evrópsk samgönguvika

Málsnúmer 2018080974Vakta málsnúmer

Rætt um Evrópsku samgönguvikuna sem haldin er í september ár hvert.

Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir þátttöku í Evrópsku samgönguvikunni sem verður haldin 16. - 22. september 2018.

6.Umhverfis- og samgöngustefna Akureyrarbæjar - verkefni UMSA

Málsnúmer 2018080975Vakta málsnúmer

Rætt um verkefni UMSA vegna Umhverfis- og samgöngustefnu Akureyrarbæjar sem samþykkt var 2017 í bæjarstjórn.

Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð felur forstöðumanni umhverfismála að taka saman stöðuskýrslu á verkefnum stefnunnar og leggja fyrir ráðið.

Fundi slitið - kl. 10:30.