Umhverfis- og mannvirkjaráð

26. fundur 02. febrúar 2018 kl. 08:15 - 11:30 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Eiríkur Jónsson
  • Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar
Dagskrá

1.Glerárdalur - Stjórnunar- og verndaráætlun

Málsnúmer 2018010425Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að áætluninni dagsett í desember 2017.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála og Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfis- og sorpmála sátu fund umhverfis- og mannvirkjaráðs undir þessum lið.

2.Hamrar tjaldsvæði - tækjakaup

Málsnúmer 2018010444Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni um kaup á slátturtraktor fyrir tjaldsvæðið samkvæmt ákvæðum í rekstrarsamningi við Skátafélagið Klakk.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála og Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfis- og sorpmála sátu fund umhverfis- og mannvirkjaráðs undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir kaup á slátturtraktor að upphæð kr. 7.500.000 samkvæmt framlögðum gögnum.
Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar mætti á fundinn.

3.Miðbær - skortur á bílastæðum

Málsnúmer 2017120347Vakta málsnúmer

Bæjarráð hefur þann 11. janúar 2018 vísað 6. lið úr fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 14. desember 2017 til umhverfis- og mannvirkjasviðs.

Þorleifur Stefánsson og Stefán S. Ólafsson mættu í viðtalstíma bæjarfulltrúa og ræddu um mikla vöntun á bílastæðum í Miðbænum sem þarf að bæta úr hið fyrsta. Þeir reka sjúkraþjálfunina Eflingu og bentu á að þessi staða veldur viðskiptavinum þeirra miklum vandræðum. Bentu þeir á þann möguleika að fylla í efsta hluta Skátagilsins og gera þar bílastæði. Þeir telja brýnt að brugðist verði við þessum vanda sem fyrst.
Umhverfis- og mannvirkjaráði felur sviðsstjóra að svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum.

4.SVA - kaup á metan strætisvögnum

Málsnúmer 2016010147Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 31. janúar 2018 um kaup á metan stætisvögnum.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir kaupin samkvæmt fyrirliggjandi samningi.

5.Umhverfis- og mannvirkjasvið - gjaldskrár 2018

Málsnúmer 2017110168Vakta málsnúmer

Lagðar fram tillögur að óbreyttum gjaldskrám Umhverfismiðstöðvar fyrir árið 2018.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir óbreytta gjaldskrá fyrir árið 2018 og vísar henni til afgreiðslu í bæjarráði.

6.Snjómokstur og hálkuvarnir - aðgerðarhópur

Málsnúmer 2017010549Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 31. janúar 2018.
Umhverfis- og mannvirkjaráð fagnar auknu þjónustustigi í snjómokstri kringum skóla og uppfærslu á upplýsingarvef um snjómokstur í bæjarlandinu.

7.Strandgata 6 - framtíðarsýn

Málsnúmer 2018010460Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla ástandsskoðunar hússins dagsett 24. janúar 2018 og minnisblað frá Umhverfismiðstöð dagsett 31. janúar 2018.
Umhverfis- og mannvirkjaráð felur sviðsstjóra að vinna áfram að málinu og leggja tillögur fyrir ráðið í byrjun apríl 2018.

8.Umhverfis- og mannvirkjasvið - húsnæðismál

Málsnúmer 2017050072Vakta málsnúmer

Rætt um húsnæðismál Umhverfismiðstöðvar á Rangárvöllum.
Umhverfis- og mannvirkjasvið felur sviðsstjóra að ganga til samninga við Norðurorku um framtíðarsýn í húsnæðismálum Umhverfismiðstöðvar á Rangárvöllum.
Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar vék af fundi.

9.Ráðhús - breytingar á 4. hæð

Málsnúmer 2018010435Vakta málsnúmer

Kynntar tillögur að breytingum dagsettar 30. janúar 2018.

10.Fasteignir Akureyrarbæjar - útboð á úttektum brunaviðvörunarkerfa

Málsnúmer 2016030012Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 31. janúar 2018.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að samningurinn við Nortek verði framlengdur um eitt ár í samræmi við ákvæði núgildandi samnings.

11.Bílaklúbbur Akureyrar - drenun svæðis

Málsnúmer 2018010434Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 29. janúar 2018.

12.Jaðar - umhverfismat á svæðinu

Málsnúmer 2018010445Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 31. janúar 2018.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að farið verði í umhverfismat á svæðinu og felur sviðsstjóra að vinna áfram að málinu.

13.Þarfagreining vegna 50 m innisundlaugar

Málsnúmer 2018010304Vakta málsnúmer

Tilnefning fulltrúa ráðsins í verkefnisliðið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð tilnefnir Ingibjörgu Ólöfu Isaksen B lista sem fulltrúa ráðsins í verkefnisliðinu.

14.Sundlaug Akureyrar - sundlaugargarður

Málsnúmer 2017100387Vakta málsnúmer

Kynning á framkvæmdum í sundlaugargarðinum.
Hermann Ingi Arason V-lista vék af fundi kl. 11:20.

Fundi slitið - kl. 11:30.