Umhverfis- og mannvirkjaráð

25. fundur 19. janúar 2018 kl. 08:15 - 09:02 Fundarherbergi FAK
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Eiríkur Jónsson
  • Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Jón Þorvaldur Heiðarsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda
  • Guðný Skúladóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Guðný Skúladóttir Fulltrúi
Dagskrá

1.Glerárdalur - leyfi fyrir þyrluskíðaferðum í fólkvanginum

Málsnúmer 2016120037Vakta málsnúmer

Umhverfisstofnun óskar eftir umsögn um framkvæmdaleyfi á Glerárdal frá Bergmönnum ehf vegna áframhaldandi starfsemi á þyrluskíðaferðum í fólkvangi á Glerárdal. Árið 2017 var leyfi veitt til eins árs. Þeir óska eftir leyfi frá 2018-2022.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir beiðni frá Bergmönnum ehf um leyfi fyrir þyrluskíðaferðum á Glerárdal. Ráðið gerir fyrirvara um að farið verði eftir reglugerðum er gilda um vatnsverndarsvæði og að leyfið verði veitt tímabundið til eins árs.

2.Mölun malbiksafganga - verðfyrirspurn

Málsnúmer 2018010220Vakta málsnúmer

Lögð fyrir niðurstaða á verðfyrirspurn vegna mölunar á malbiksbrotum.



Óskað var eftir tilboði í mölun á malbiksafgöngum og íblöndun með klöpp eða grófu grjóti þannig að meðhöndlað efni (malbiksbrot) verði 0 -100 mm að stærð.

Heildarmagn unnins efnis skal vera um 7.000 m³ og skal malarefnið vera 30% og malbiksbrotið 70%.



Þrjú tilboð bárust.

Skútaberg ehf að upphæð kr. 10.818.500 87% af kostnaðaráætlun

GV Gröfur ehf að upphæð kr. 12.880.000 103% af kostnaðaráætlun

Þverárgolf ehf að upphæð kr. 16.840.000 135% af kostnaðaráætlun

Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Skútaberg ehf.

3.Lystigarður - skiltavél

Málsnúmer 2018010238Vakta málsnúmer

Lagt fyrir minnisblað frá Guðrúnu Kristínu Björgvinsdóttur verkstjóra í Lystigarðinum vegna kaupa á skiltavél í garðinn.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fjárveitingu úr búnaðarkaupum til kaupa á skiltavél í Lystigarðinn.

4.Naustahverfi 7. áfangi - Hagar

Málsnúmer 2017080054Vakta málsnúmer

Lögð fyrir niðurstaða á opnun tilboða á eftirliti í Naustahverfi, 7. áfangi Hagar.

Tvö tilboð bárust:

Mannvit hf að upphæð kr. 19.960.000 69% af kostnaðaráætlun

Verkís að upphæð kr. 35.092.000 121% af kostnaðaráætlun.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Mannvit hf.

5.Forgangsröðun umferðaröryggisaðgerða á þjóðvegum um Akureyri

Málsnúmer 2016010071Vakta málsnúmer

Lögð fram niðurstaða tilboða vegna umferðaröryggis á Glerárgötu - Hörgárbraut.



Tvö tilboð bárust:

Túnþökusalan Nesbræður ehf að upphæð kr. 91.791.600 99% af kostnaðaráætlun

Finnur ehf að upphæð kr. 104.804.030 113% af kostnaðaráætlun.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Túnþökusöluna Nesbræður ehf.

6.Umhverfis- og mannvirkjaráð - fundaráætlun 2018

Málsnúmer 2018010240Vakta málsnúmer

Lögð fram breyting á fundaráætlun 2018
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fundaráætlun til loka maí 2018.

7.Verkfundargerðir 2018

Málsnúmer 2018010235Vakta málsnúmer

Efirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:

Listasafn: 12. og 13. verkfundur dagsettir 30. nóvember og 14. desember 2017.

Fundi slitið - kl. 09:02.