Umhverfis- og mannvirkjaráð

11. fundur 19. maí 2017 kl. 08:15 - 10:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Eiríkur Jónsson
  • Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður tæknideildar
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar
Dagskrá

1.Slökkvilið - beiðni um kaup á bílum

Málsnúmer 2017040039Vakta málsnúmer

Lögð fram tilboð sem bárust í þjónustubifreið fyrir Slökkviliðið. Alls bárust tvö tilboð:

Bjóðendur
upphæð
% af áætlun

Hekla hf
8.662.680
99,8%

BL

9.008.511
103,8%







Kostnaðaráætlun
8.680.000
100%

Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að samið verði við lægstbjóðanda Heklu hf.

2.Umhverfismiðstöð - malbiksfræsari

Málsnúmer 2017050112Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar kaup á malbiksfræsara fyrir 11 milljónir króna án vsk.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir kaupin.

3.Reiðleiðir í landi Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2017020055Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að samningum við Hestamannafélagið Létti og Golfklúbb Akureyrar vegna moldarlosunar við golfvöllinn.

4.Molta pappírstætari

Málsnúmer 2017010100Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að samningi við Moltu dagsett 18. maí 2017 um kaup á pappírstætara.

5.Beiðni um endurnýjun sviðsbúnaðar og tækja í Samkomuhúsi

Málsnúmer 2017050022Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni frá stjórn Akureyrarstofu um fjármagn til endurnýjunar sviðsbúnaðar og tækja fyrir Samkomuhúsið að upphæð 20 milljónir króna.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir búnaðarkaup að upphæð 10 milljónir króna.

Þorsteinn Hlynur Jónsson Æ-lista sat hjá við afgreiðslu málsins.

6.Sundlaug Akureyrar - endurnýjun rennibrauta og sundlaugarsvæðis

Málsnúmer 2014020207Vakta málsnúmer

Lögð fram stöðuskýrsla 2 vegna framkvæmdanna dagsett 18. maí 2017.

7.Hlíð álma 3 - utanhússmálun 2017

Málsnúmer 2017050102Vakta málsnúmer

Lögð fram tilboð sem bárust í utanhússmálun á álmu 3 í Hlíð. Alls bárust þrjú tilboð:



GÞ málverk ehf

14.166.550
115,0%

Litblær ehf

11.439.400
92,8%

Málaram þinn/SNS málun
18.932.555
153,7%






Kostnaðaráætlun

12.321.727
100%
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að samið verði við lægstbjóðanda Litblæ ehf.

8.Umhverfis- og mannvirkjasvið - starfsmannamál

Málsnúmer 2017050113Vakta málsnúmer

Rætt um starfsmannamál á umhverfis- og mannvirkjasviði.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að fela sviðsstjóra að auglýsa 2 störf hjá sviðinu.

Fundi slitið - kl. 10:00.