Umhverfis- og mannvirkjaráð

6. fundur 17. mars 2017 kl. 08:15 - 10:50 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Eiríkur Jónsson
  • Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar
Dagskrá
Í upphafi fundar leitaði formaður afbrigða til að taka dagskrárliðinn Nökkvi siglingaklúbbur - framkvæmdir vegna uppbyggingarsamnings sem 1. lið á dagskrá og var það samþykkt með 5 samhljóða atkvæðum.

1.Nökkvi siglingaklúbbur - framkvæmdir vegna uppbyggingarsamnings

Málsnúmer 2015030205Vakta málsnúmer

Lögð fram stöðuskýrsla 1 vegna verkefnisins dagsett 15. mars 2017.

Anton Örn Brynjarsson framkvæmdastjóri hjá AVH ehf kom á fundinn og kynnti tillöguna.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að farið verði í útboð á fergingu svæðisins.

2.Skjaldarvík - beiðni um leigu á landi

Málsnúmer 2009110023Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að samningi við Hestamannafélagið Létti dagsett 13. mars 2017 um leigu á beitilandi.
Meirihluti umhverfis- og mannvirkjaráðs samþykkir samninginn.

Þorsteinn Hlynur Jónsson Æ-lista sat hjá við afgreiðslu málsins.

3.Göngugata - lokun með rafmagnspolla

Málsnúmer 2017020166Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 16. mars 2017 vegna aðgengis að göngugötunni.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að fresta framkvæmdinni og skoða hana í samhengi með öðrum framkvæmdum í tengslum við göngugötuna.

4.Árholt - húsaleigusamningur við AkureyrarAkademíuna

Málsnúmer 2015030019Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar húsaleigusamningur við AkureyrarAkademíuna dagsettur 28. febrúar 2017 sem gildir til ársloka 2017.

5.Glerárgata 34 - Nýsköpunarmiðstöð

Málsnúmer 2017030093Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar húsaleigusamningur við Visný ehf. dagsettur 16. febrúar 2017 sem gildir til 28. febrúar 2020.

6.Rangárvallastígur - framkvæmd

Málsnúmer 2017030078Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 16. mars 2017 vegna framkvæmdarinnar.

7.Umhverfis- og mannvirkjasvið - starfslýsingar

Málsnúmer 2017030111Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar skipurit fyrir sviðið ásamt starfslýsingum fyrir forstöðumenn sviðsins.

8.Verkfundargerðir 2017

Málsnúmer 2017010343Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerð lögð fram á fundinum:

Nökkvi: 13. fundur verkefnisliðs dagsettur 3. mars 2017.

Fundi slitið - kl. 10:50.