Stjórnsýslunefnd

5. fundur 12. október 2011 kl. 16:30 - 17:45 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Tryggvi Þór Gunnarsson formaður
  • Hlín Bolladóttir
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
  • Ólafur Jónsson
  • Petrea Ósk Sigurðardóttir
Starfsmenn
  • Gunnar Frímannsson fundarritari
Dagskrá

1.Samráðsfundur með hverfisnefndum

Málsnúmer 2004050050Vakta málsnúmer

Til fundar með stjórnsýslunefnd voru boðaðir fulltrúar hverfisnefnda til að ræða málefni þeirra. Á fundinn komu Hrafnhildur E. Karlsdóttir og Bjarni Sigurðsson úr Naustahverfi, Brynja Sigurðardóttir og Berglind Rafnsdóttir úr Holta- og Hlíðahverfi og Guðjón Ingvi Guðmundsson, Elvar Smári Sævarsson, Þorberg Þ. Þorbergsson og Svala Ýrr Björnsdóttir úr Lunda- og Gerðahverfi.
Í upphafi fundar kynnti Sigríður Stefánsdóttir framkvæmdastjóri afmælisárs áform um hátíðarhöld á 150 ára afmæli Akureyrar 2012 og óskaði eftir samstarfi við hverfisnefndir um þau.
Rætt var um samskipti og samskiptaleiðir milli hverfisnefnda og bæjarins. Af hálfu hverfisnefnda var sérstaklega látin í ljós óánægja með svör framkvæmdadeildar við erindum en að sama skapi þóttu samskipti við skipulagsdeild til fyrirmyndar.

Stjórnsýslunefnd þakkar fulltrúum hverfisnefndanna komuna á fundinn og gagnleg skoðanaskipti.

Fundi slitið - kl. 17:45.