Stjórn Hlíðarfjalls

17. fundur 22. september 2021 kl. 10:30 - 12:20 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Andri Teitsson
  • Eva Hrund Einarsdóttir
Starfsmenn
  • Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
  • Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður hlíðarfjalls
Fundargerð ritaði: Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri
Dagskrá

1.Hlíðarfjall - fjárhagsáætlun

Málsnúmer 2020090427Vakta málsnúmer

Á fundi stjórnar þann 1. september sl. var starfsmönnum falið að forgangsraða endurnýjun á búnaði og leggja fram áætlun um fjármögnun.
Stjórn Hlíðarfjalls samþykkir að óska eftir viðauka að upphæð kr. 7.000.000 sem yrði tekinn af rekstri ársins 2021 og færður yfir á eignfærða fjárfestingu.

2.Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Hlíðarfjalls 2022

Málsnúmer 2021090812Vakta málsnúmer

Umræða um starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Hlíðarfjalls fyrir árið 2022.
Stjórn Hlíðarfjalls felur starfsmönnum að bjóða út rekstur skíðaleigunnar.

Frekari umræðu um starfs- og fjárhagsáætlun frestað til næsta fundar.

3.Hlíðarfjall - gjaldskrá

Málsnúmer 2020090392Vakta málsnúmer

Tillaga að gjaldskrá 2022 lögð fram til kynningar og umræðu.
Afgreiðslu er frestað til næsta fundar.

4.Hlíðarfjall - útboð á veitingarekstri

Málsnúmer 2020120222Vakta málsnúmer

Til umræðu útboð á veitingarekstri í Hlíðarfjalli veturinn 2021 - 2022.

Stjórn Hlíðarfjalls felur starfsmönnum að uppfæra útboðsgögn út frá umræðum á fundinum og setja útboð í ferli.

5.Hlíðarfjall - rekstur skíða- og brettaskóla

Málsnúmer 2020120221Vakta málsnúmer

Til umræðu úthýsing á rekstri skíða- og brettaskóla veturinn 2021 - 2022.
Stjórn Hlíðarfjalls samþykkir að auglýst verði eftir aðilum til að sjá um skíða- og brettaskóla Hlíðarfjalls.

6.Sumaropnun í Hlíðarfjalli

Málsnúmer 2020050264Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar aðsóknartölur að Hlíðarfjalli sumarið 2021.

Fundi slitið - kl. 12:20.