Stjórn Hlíðarfjalls

3. fundur 18. maí 2020 kl. 13:00 - 15:00 Rósenborg - kennslustofa 3. hæð
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Andri Teitsson
  • Eva Hrund Einarsdóttir
Starfsmenn
  • Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
  • Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður hlíðarfjalls
Fundargerð ritaði: Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri
Dagskrá

1.Skíðalyfta í Hlíðarfjalli

Málsnúmer 2016030107Vakta málsnúmer

Ingi Björnsson fulltrúi Vina Hlíðarfjalls mætti á fundinn og gerði grein fyrir stöðu framkvæmda við uppsetningu á stólalyftu.

2.Beiðni um samstarf vegna fjallahjólabrautar

Málsnúmer 2020050262Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. maí 2020 frá Ágústi Erni Pálssyni formanni Hjólreiðafélags Akureyrar þar sem óskað er eftir samstarfi við Akureyrarbæ um fjallahjólabraut.

Ágúst Örn mætti á fundinn.
Stjórn Hlíðarfjalls felur forstöðumanni að leggja mat á kostnað við þá liði sem snúa að hugsanlegu framlagi Hlíðarfjalls til þessa samstarfs um fjallahjólabraut.

3.Hlíðarfjall - rekstur 2020

Málsnúmer 2020020385Vakta málsnúmer

Farið var yfir fjárhagsááætlun 2020 og að auki niðurstöðu ársins 2019.
Starfsmönnum falið að vinna frekari gögn fyrir næsta fund.

4.Beiðni forstöðumanns um kaup á gröfu

Málsnúmer 2020050263Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28. apríl 2020 frá Guðmundi Karli Jónssyni forstöðumanni Hlíðarfjalls þar sem óskað er eftir fjárveitingu til að kaupa gröfu þar sem Vinnueftirlitið hefur bannað notkun á vél, árgerð 1991, sem Hlíðarfjall á. Viðgerðarkostnaður er um 5 milljónir króna.
Afgreiðslu frestað þar til fyrir liggur frekari greining á fjárhagsstöðu Hlíðarfjalls.

5.Sumaropnun í Hlíðarfjalli

Málsnúmer 2020050264Vakta málsnúmer

Umræða um sumaropnun í Hlíðarfjalli 2020.
Stjórn Hlíðarfjalls samþykkir að halda óbreyttri sumaropnun og felur forstöðumanni að útfæra það á sem hagkvæmastan hátt.

6.Viðbrögð Akureyrarbæjar vegna COVID-19 faraldurs

Málsnúmer 2020030398Vakta málsnúmer

Umræða um hvort endurgreiða eigi vetrarkort vegna COVID-19 eða bregðast við ástandinu með einhverjum öðrum hætti.
Stjórn Hlíðarfjalls leggur til við bæjarráð að veittur verði 30% afsláttur á vetrarkortum 2020 - 2021 til þeirra sem áttu vetrarkort 2019 - 2020. Skilyrði er að kortin verði keypt fyrir 15. október 2020.

7.Skíðafélag Akureyrar - Andrés Andar leikarnir

Málsnúmer 2018010433Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 25. mars 2020 frá undirbúningsnefnd Andrésar Andar leikanna 2020 þar sem óskað er eftir því að framlag að upphæð 650.000 kr. samkvæmt samningi verði greitt þó svo að leikunum hafi verið aflýst í ljósi COVID-19.
Stjórn Hlíðarfjalls vísar erindinu til bæjarráðs.

8.Skíðafélag Akureyrar - samningur vegna aðstöðu

Málsnúmer 2019110186Vakta málsnúmer

Umræða um samning við Skíðafélag Akureyrar vegna aðstöðu í Hlíðarfjalli.
Afgreiðslu frestað.

9.Zalibuna ehf. - umsókn um afnot af aðstöðunni í Hlíðarfjalli

Málsnúmer 2014090022Vakta málsnúmer

Farið yfir samningsdrög við Zalibunu ehf.
Stjórn Hlíðarfjalls felur sviðsstjóra og forstöðumanni að fara betur yfir drögin og skoða vel hvernig Zalibuna getur farið saman með uppsetningu hjólabrauta, brettaparks og með gönguleiðum.

10.Skotveiði í landi Hlíðarfjalls

Málsnúmer 2020030124Vakta málsnúmer

Umræða um hvort banna eigi skotveiði í landi Hlíðarfjalls.
Stjórn Hlíðarfjalls samþykkir að banna alla skotveiði í landi Hlíðarfjalls og felur forstöðumanni að auglýsa það vel.

Fundi slitið - kl. 15:00.