Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

262. fundur 05. júní 2015 kl. 08:15 - 09:40 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Dagur Fannar Dagsson formaður
  • Helena Þuríður Karlsdóttir
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir framkvæmdastjóri
  • Steindór Ívar Ívarsson verkefnastjóri viðhalds
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Stöðuskýrslur FA 2015

Málsnúmer 2015040077Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar stöðuskýrsla 3 fyrir stjórn FA dagsett 2. júní 2015.

2.Íþróttasvæði Þórs - stúka

Málsnúmer 2015060038Vakta málsnúmer

Rætt um viðhald á stúkunni og lagt fram minnisblað dagsett 4. júní 2015.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að farið verði í framkvæmdir samkvæmt framlögðum gögnum og fjármagn til verksins tekið af nýframkvæmdaráætlun 2015.

3.Hlíðarfjall - vatnsból Skíðastaða í Hlíðarfjalli

Málsnúmer 2015040037Vakta málsnúmer

Rætt um vatnsból og fráveitur í Hlíðarfjalli og lögð fram greinargerð Árna Hjartarsonar hjá ÍSOR dagsett 7. október 2013 um vatnsból Skíðastaða í Hlíðarfjalli ásamt tillögum hans að verndarsvæði fyrir vatnsból Skíðastaða dagsett 20. janúar 2015.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar óskar eftir því að Norðurorka yfirtaki alla umsjón með vatnsbólunum og allri fráveitu í Hlíðarfjalli.

4.Verkfundargerðir FA 2015

Málsnúmer 2015010093Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:
Hlíð endurbætur á Víði- og Furuhlíð: 2., 3., 4. og 5. fundur verkefnisliðs dagsettir 18. mars, 15. og 29. apríl og 1. júní 2015 og Vettvangsferð verkefnisliðs dagsett 20. apríl 2015.
Listasafn endurbætur: 3. fundur verkefnisliðs dagsettur 31. mars 2015.
Naustaskóli kennaraálma: 3., 4., 5. og 6. verkfundur dagsettir 26. mars, 9. og 22. apríl og 8. maí 2015. Naustaskóli íþróttahús - gólf og búnaður: 1. og 2. fundur verkefnisliðs dagsettir 23. febrúar og 24. mars 2015.
Nökkvi uppbyggingarsamningur: 2., 3. og 4. fundur verkefnisliðs dagsettir 20. mars, 15. og 28. apríl 2015.
Skautahöll endurnýjun á svelli: 2., 3., 4. og 5. fundur verkefnisliðs dagsettir 8. og 22. apríl, 7. maí og 3. júní 2015.
Sundlaug Ak.- endurnýjun rennibrauta: 8. og 9. fundur verkefnisliðs dagsettir 31. mars og 8. maí 2015.
Þ99 kjallari: 1. og 2. fundur verkefnisliðs dagsettir 4. maí og 1. júní 2015.

Fundi slitið - kl. 09:40.