Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

261. fundur 08. maí 2015 kl. 08:15 - 11:05 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Dagur Fannar Dagsson formaður
  • Helena Þuríður Karlsdóttir
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir framkvæmdastjóri
  • Steindór Ívar Ívarsson verkefnastjóri viðhalds
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Fasteignir Akureyrarbæjar - kynjuð fjárhagsáætlanagerð

Málsnúmer 2015050046Vakta málsnúmer

Kynning á hugtakinu kynjuð fjárhagsáætlanagerð.

2.Stöðuskýrslur FA 2015

Málsnúmer 2015040077Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar stöðuskýrsla 2 fyrir stjórn FA.

3.Fasteignir Akureyrarbæjar - kynning á viðhaldi fyrir stjórn FA

Málsnúmer 2014120118Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 7. maí 2015 um helstu viðhaldsverkefni hjá FA á árinu 2015.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að keyptur verði nýr ofn í eldhús Brekkuskóla og að kostnaðurinn verði færður á liðinn óráðstafað til búnaðarkaupa 2015.

4.Listasafn - endurbætur 2015

Málsnúmer 2014010168Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnisblað dagsett 6. maí 2015 vegna hugarflugsfundar um framtíðarsýn Listasafnsins sem haldinn var í Ketilhúsinu 22. apríl 2015.

5.Íbúðir fyrir fatlað fólk - nýframkvæmd

Málsnúmer 2015050024Vakta málsnúmer

Rætt um húsnæðismál fatlaðra og tilnefning í verkefnislið um málefnið.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar skipar Dag Fannar Dagsson L-lista í verkefnisliðið.

6.Naustaskóli - breytingar vegna áforma um að staðsetja til frambúðar tvær deildir Naustatjarnar í Naustaskóla

Málsnúmer 2015040081Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 20. febrúar 2015 frá skóladeild um framtíð leikskóladeilda Naustatjarnar í húsnæði Naustaskóla. Málið var áður á dagskrá 17. apríl 2015 og var tekið fyrir hjá bæjarráði 30. apríl 2015 þar sem málinu var vísað aftur til stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar til skoðunar.
Meirihluti stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að farið verði í framkvæmdir við salerni í Naustaskóla til að koma fyrir tveimur deildum Naustatjarnar í skólanum með fyrirvara um að bæjarráð samþykki viðbótarfjárveitingu að upphæð kr. 14.000.000 til verksins.
Njáll Trausti Friðbertsson D-lista og Þorsteinn Hlynur Jónsson Æ-lista sátu hjá við afgreiðslu þessa liðar.

7.Nökkvi siglingaklúbbur - framkvæmdir vegna uppbyggingarsamnings

Málsnúmer 2015030205Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðuna á fyrirhuguðum framkvæmdum við aðstöðusköpun hjá Siglingaklúbbnum Nökkva.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar leggur til að framkvæmdaáætlun við félagssvæði Nökkva verði endurskoðuð og að fjármagn ársins 2015 samkvæmt uppbyggingarsamningi verði nýtt í að ljúka þeim framkvæmdum sem þegar eru hafnar á svæðinu ásamt hönnun á framtíðarsýn félagsins í húsnæðismálum.

Fundi slitið - kl. 11:05.