Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

258. fundur 06. mars 2015 kl. 08:15 - 08:45 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Dagur Fannar Dagsson formaður
  • Eiríkur Jónsson
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir framkvæmdastjóri
  • Steindór Ívar Ívarsson verkefnastjóri viðhalds
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá
Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi V-lista mætti ekki á fundinn og ekki varamaður í hans stað.

1.Keilusíða 12f - kauptilboð

Málsnúmer 2015030060Vakta málsnúmer

Lagt fram samþykkt kauptilboð í Keilusíðu 12f sem á að verða hluti af félagslegu leiguíbúðakerfi Akureyrarbæjar.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir kauptilboðið.

2.Verkfundargerðir FA 2015

Málsnúmer 2015010093Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:
Nökkvi - uppbyggingarsamningur: 1. fundur verkefnisliðs dagsettur 16. desember 2014.
Listasafn - endurbætur: 1. fundur verkefnisliðs dagsettur 25. febrúar 2015.
Sundlaug Akureyrar - endurnýjun rennibrauta: 7. fundur verkefnisliðs dagsettur 19. febrúar 2015.

3.Snægil 3b - kauptilboð

Málsnúmer 2015030036Vakta málsnúmer

Lagt fram samþykkt kauptilboð í Snægil 3b sem á að verða hluti af félagslegu leiguíbúðakerfi Akureyrarbæjar.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir kauptilboðið.

Fundi slitið - kl. 08:45.