Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

252. fundur 07. nóvember 2014 kl. 08:15 - 10:20 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Dagur Fannar Dagsson formaður
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Helena Þuríður Karlsdóttir
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir framkvæmdastjóri
  • Óskar Gísli Sveinsson verkefnastjóri viðhalds
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá
Guðmundur Baldvin Guðmundsson B-lista mætti í forföllum Ingibjargar Ólafar Isaksen.

1.Fjárhagsáætlun 2014 - Fasteignir Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2013090245Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðuna á viðhaldsliðum FA árið 2014.

2.Borgargil 1 - 6 íbúðir fyrir fötluð ungmenni

Málsnúmer 2011120037Vakta málsnúmer

Lögð fram stöðuskýrsla 3 fyrir framkvæmdina dagsett 5. nóvember 2014.

3.Þórunnarstræti 99 - aðstaða fyrir Skátafélagið Klakk í kjallara

Málsnúmer 2014080046Vakta málsnúmer

Lögð fram kostnaðaráætlun hönnuða fyrir framkvæmdina.

4.Hamrar - þjónustuhús á tjaldsvæði 2014

Málsnúmer 2014020206Vakta málsnúmer

Lögð fram stöðuskýrsla 1 fyrir framkvæmdina dagsett 6. nóvember 2014.

5.Ófyrirséð viðhald - útboð 2014

Málsnúmer 2014110022Vakta málsnúmer

Rætt um væntanlegt útboð á tímavinnu iðnaðarmanna vegna ófyrirséðs viðhalds á vegum Fasteigna Akureyrarbæjar.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að auglýsa útboðið og að samið verði við iðnaðarmenn til tveggja ára með möguleika á framlengingu um eitt ár.

6.Listasafn - endurbætur 2015 - tilnefning í verkefnislið

Málsnúmer 2014010168Vakta málsnúmer

Tilnefning nefndarmanns í verkefnislið vegna endurbóta á Listasafninu.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar tilnefnir Þorstein Hlyn Jónsson V-lista í verkefnisliðið og óskar eftir tilnefningu frá stjórn Akureyrarstofu og Sjónlistamiðstöðinni.

7.Hlíð - endurbætur á Víði- og Furuhlíð - tilnefning í verkefnislið

Málsnúmer 2014110024Vakta málsnúmer

Tilnefning nefndarmanns í verkefnislið vegna framkvæmdanna.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar tilnefnir Dag Fannar Dagsson L-lista í verkefnisliðið og óskar eftir tilnefningu frá Öldrunarheimilum Akureyrar og félagsmálaráði.

8.Verkfundargerðir FA 2014

Málsnúmer 2014010024Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerð lögð fram á fundinum:
Borgargil 1 - Hyrna ehf: 18. verkfundur dagsettur 31. október 2014.

Fundi slitið - kl. 10:20.