Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

250. fundur 29. september 2014 kl. 13:00 - 16:05 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Dagur Fannar Dagsson formaður
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Helena Þuríður Karlsdóttir
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir framkvæmdastjóri
  • Óskar Gísli Sveinsson verkefnastjóri viðhalds
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2015 - Fasteignir Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2014080035Vakta málsnúmer

Unnið áfram að fjárhagsáætlun fyrir árið 2015.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir fjárhagsáætlunina fyrir árið 2015.

2.Önnur mál

Málsnúmer 2014010023Vakta málsnúmer

Í ljósi mikilla umræðna í samfélaginu um myglusvepp í fasteignum spurðist Helena Þuríður Karlsdóttir S-lista fyrir um verklagsreglur hjá Akureyrarbæ ef slík mál koma upp í fasteignum bæjarins.

Fundi slitið - kl. 16:05.