Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

231. fundur 04. október 2013 kl. 08:15 - 09:35 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Helgi Snæbjarnarson
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Guðgeir Hallur Heimisson áheyrnarfulltrúi
  • Kristín Þóra Kjartansdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðni Helgason
  • Óskar Gísli Sveinsson
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá
Silja Dögg Baldursdóttir L-lista og Bjarni Sigurðsson áheyrnarfulltrúi A-lista mættu ekki á fundinn.

1.Steinnes - beiðni um áframhaldandi leigu á húsinu

Málsnúmer 2013050311Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju, var áður á dagskrá stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar 7. júní 2013.
Lögð fram drög dags. 2. október 2013 að húsaleigusamningi við Níels Karlsson.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir drögin.

2.Hlein Hrísey - beiðni um aðstöðu fyrir fjarnema

Málsnúmer 2013100002Vakta málsnúmer

Erindi dags. 11. ágúst 2013 frá Ingólfi Sigfússyni og Hrund Teitsdóttur til hverfisráðs Hríseyjar um aðstöðu í Hlein fyrir fjarnema búsetta í Hrísey.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir erindið.

3.Íþróttamiðstöð Giljaskóla - kærumál

Málsnúmer 2009100042Vakta málsnúmer

Farið yfir niðurstöður dóms í máli Eyktar gegn Akureyrarkaupstað sem kveðinn var upp 8. júlí 2013.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar unir niðurstöðum dómsins.

Njáll Trausti Friðbertsson D-lista og Sigfús Arnar Karlsson B-lista sátu hjá við afgreiðslu málsins.

4.Úttekt á rekstri Fasteigna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2013060049Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar greinargerð dags. 3. október 2013 frá framkvæmdastjóra Fasteigna Akureyrarbæjar.

5.Verkfundargerðir FA 2013

Málsnúmer 2013010321Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:
Naustaskóli 2. áfangi - SS Byggir ehf: 42. verkfundur dags. 24. september 2013.
Þórunnarstræti 99 - L og S verktakar: 9. verkfundur dags. 26. september 2013.

Fundi slitið - kl. 09:35.