Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

217. fundur 14. desember 2012 kl. 11:45 - 12:40 Eyrarlandsstofa í Lystigarði
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Sigríður María Hammer
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Bjarni Sigurðsson áheyrnarfulltrúi
  • Guðgeir Hallur Heimisson áheyrnarfulltrúi
  • Kristín Þóra Kjartansdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir
  • Óskar Gísli Sveinsson
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Fundaráætlun stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar 2013

Málsnúmer 2012121112Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundaráætlun fyrir árið 2013.

2.Bakkahlíð 39 - húsaleigusamningur við Akureyrarakademíuna

Málsnúmer 2012121113Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að húsaleigusamningi við Akureyrarakademíuna.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar felur framkvæmdastjóra að ganga frá samningnum.

3.Íþóttafélagið Þór - aðkoma Akureyrarbæjar að breytingum á anddyri Hamars/Bogans

Málsnúmer 2012120018Vakta málsnúmer

3. liður í fundargerð íþróttaráðs dags. 12. desember 2012:
Erindi dags. 27. nóvember sl. frá Íþróttafélaginu Þór þar sem óskað er eftir þátttöku Akureyrarbæjar í kostnaði við framkvæmdir á anddyri félagsheimilis Þórs. Eiður Arnar Pálmason framkvæmdarstjóri Þórs sat fundinn undir þessum lið.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að leggja fram kr. 1.750.000 í framkvæmdakostnað að framkvæmd lokinni og að uppfylltum öllum leyfum og samþykktum.

4.KA svæði - gervigrasvöllur

Málsnúmer 2012120333Vakta málsnúmer

Rætt um væntanlegar framkvæmdir við gervigrasvöllinn.

Fundi slitið - kl. 12:40.