Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

214. fundur 05. október 2012 kl. 08:15 - 09:55 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Sigríður María Hammer varaformaður
  • Helgi Snæbjarnarson
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Bjarni Sigurðsson áheyrnarfulltrúi
  • Guðgeir Hallur Heimisson áheyrnarfulltrúi
  • Kristín Þóra Kjartansdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir
  • Óskar Gísli Sveinsson
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Velferðarráðuneytið - ósk um umsögn um reglur um búnaðarkaup vegna hjúkrunarheimila

Málsnúmer 2012050209Vakta málsnúmer

Lagt fram svar Velferðarráðuneytisins við bréfi dags. 18. júní 2012 þar sem Guðríður Friðriksdóttir fyrir hönd Fasteigna Akureyrarbæjar og Brit J. Bieltvedt fyrir hönd Öldrunarheimila Akureyrar óska eftir því að framlag ríkisins til búnaðarkaupa fyrir Lögmannshlíð verði hækkað úr 60% í 90% af fullri fjárveitingu, eða úr 1,2 mkr. í 1,7 mkr. á rými.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að fela framkvæmdastjóra Fasteigna Akureyrarbæjar, bæjarstjóra og framkvæmdastjóra Öldrunarheimila Akureyrar að fylgja málinu eftir.

2.Húsnæði dagþjónustu, skammtímavistunar og íbúðarsambýli 2012 FA

Málsnúmer 2011120037Vakta málsnúmer

Farið yfir framgang mála varðandi staðsetningu íbúðarsambýlisins.

3.Skautahöllin - beiðni um endurbætur á svæði fyrir brettafólk sunnan hallarinnar

Málsnúmer 2012100023Vakta málsnúmer

Tekin fyrir tilvísun íþróttaráðs dags. 6. september 2012 varðandi erindi ÍBA og SKA þar sem óskað er eftir bættri aðstöðu fyrir snjóbrettaiðkendur sunnan Skautahallarinnar.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar felur framkvæmdastjóra að vinna áfram að málinu.

4.Búnaðarkaup fyrir íþróttamannvirki - óskir íþróttaráðs um aðkomu Fasteigna Akureyrarbæjar að endurnýjun búnaðar

Málsnúmer 2012100038Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi íþróttaráðs dags. 20. september 2012 þar sem óskað er eftir að Fasteignir Akureyrarbæjar komi að viðhaldi og endurnýjun áhalda og búnaðar í íþróttamannvirkjum bæjarins.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar felur framkvæmdastjóra að vinna áfram að málinu.

5.Fjárhagsáætlun 2013 - Fasteignir Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2012090187Vakta málsnúmer

Áframhaldandi vinna við gerð fjárhagsáætlunar 2013.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir áætlunina.

6.Verkfundargerðir FA 2012

Málsnúmer 2012010240Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerð lögð fram á fundinum:
Naustaskóli 2. áfangi - SS Byggir ehf: 29. verkfundur dags. 20. september 2012.

Fundi slitið - kl. 09:55.