Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

213. fundur 21. september 2012 kl. 08:15 - 10:15 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Hjörleifur Hallgríms Herbertsson
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Bjarni Sigurðsson áheyrnarfulltrúi
  • Jón Ingi Cæsarsson áheyrnarfulltrúi
  • Kristín Þóra Kjartansdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir
  • Óskar Gísli Sveinsson
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2013 - Fasteignir Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2012090187Vakta málsnúmer

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2013.

2.Þórunnarstræti 99 - skammtímavistun fyrir fatlaða

Málsnúmer 2012090189Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar verðkannanir sem gerðar hafa verið er varða hönnun hússins. Samið var við lægstbjóðendur í hverri verðkönnun sem voru eftirfarandi:
Arkitektahönnun - Gísli Kristinsson Arkitektúr.is, Rafhönnun - Verkís, Burðarþol og lagnir - AVH.

3.Húsnæði dagþjónustu, skammtímavistunar og íbúðasambýli 2012 FA

Málsnúmer 2011120037Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar lóðarumsókn í Giljahverfi, við Borgarbraut, fyrir íbúðasambýlið.

4.Verkfundargerðir FA 2012

Málsnúmer 2012010240Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:
Hjúkrunarheimili Vestursíðu 9 - SS Byggir ehf: 25.- 30. verkfundur dags. 21. júní, 5., 19. og 26. júlí, 23. ágúst og 13. september 2012.
Naustaskóli 2. áfangi - SS Byggir ehf: 26.- 28. verkfundur dags. 3. og 24. júlí og 21. ágúst 2012.

Fundi slitið - kl. 10:15.