Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

204. fundur 02. mars 2012 kl. 08:45 - 11:20 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Helgi Snæbjarnarson
  • Sigríður María Hammer
  • Ólafur Jónsson
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Bjarni Sigurðsson áheyrnarfulltrúi
  • Jón Ingi Cæsarsson áheyrnarfulltrúi
  • Sóley Björk Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Akureyrarvöllur - endurbætur 2010-2012

Málsnúmer 2010070100Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar skilamat fyrir framkvæmdina. Einnig rætt um sæti í stúkuna.

Sigfús Arnar Karlsson B-lista óskar bókað:

Áður en ég íhuga það að ákveða að setja sæti í stúkuna á Akureyrarvelli er mjög mikilvægt að gert verði skriflegt samkomulag á milli Akureyrarbæjar, KA og KSÍ um framhaldið.

2.Íþróttasvæði Þórs - leki í stúku - matsgerð

Málsnúmer 2010020102Vakta málsnúmer

Lagt fram samkomulag um úrbætur á stúku á Þórsvelli dags. 14. febrúar 2012 milli Fasteigna Akureyrarbæjar og hlutaðeigandi aðila.

Meirihluti stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir samkomulagið.

Ólafur Jónsson D-lista greiðir atkvæði á móti afgreiðslunni og óskar bókað:

Ég lýsi yfir vonbrigðum mínum með þetta samkomulag þar sem hér hallar verulega á Akureyrarkaupstað miðað við fyrirliggjandi matsgerð dómkvaddra matsmanna. Ég greiði því atkvæði gegn þessu.

3.Hjúkrunarheimili Vestursíðu 9

Málsnúmer 2011080097Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar stöðuskýrsla 7 fyrir framkvæmdina.

4.Lystigarður - kaffihús og minjagripasala

Málsnúmer 2010110084Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar stöðuskýrsla 1 fyrir framkvæmdina.

5.Verkfundargerðir FA 2012

Málsnúmer 2012010240Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:
Lystigarður kaffihús - BB Byggingar ehf: 3. og 4. verkfundur dags. 14. og 28. febrúar 2012.
Hjúkrunarheimili Vestursíðu 9 - SS Byggir ehf: 15. og 16. verkfundur dags. 2. og 16. febrúar 2012.
Þrastarlundur 3-5 - Virkni ehf: 6. og 7. verkfundur dags. 7. og 21. febrúar 2012.
Naustaskóli 2. áfangi - SS Byggir ehf: 17. verkfundur dags. 22. febrúar 2012.

6.Önnur mál - stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar 2012

Málsnúmer 2012010283Vakta málsnúmer

Farið var í skoðunarferð þar sem helstu framkvæmdir á vegum Fasteigna Akureyrarbæjar voru skoðaðar.

Fundi slitið - kl. 11:20.