Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

203. fundur 03. febrúar 2012 kl. 08:15 - 09:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Helgi Snæbjarnarson
  • Sigríður María Hammer
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Bjarni Sigurðsson varaáheyrnarfulltrúi
  • Jón Ingi Cæsarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir
  • Óskar Gísli Sveinsson
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Naustaskóli II. áfangi - nýbygging

Málsnúmer 2010090010Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að verksamningi við SS Byggi ehf vegna innanhússfrágangs í kennslu- og verkgreinaálmu. Einnig rætt um framkvæmdatíma á miðjurými skólans.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir samninginn og felur framkvæmdastjóra að skoða nánar framkvæmdir við miðjurýmið.

2.Naustaskóli II. áfangi - nýbygging

Málsnúmer 2010090010Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar stöðuskýrsla 2.

3.Verkfundargerðir FA 2012

Málsnúmer 2012010240Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:
Hjúkrunarheimili Vestursíðu 9 - SS Byggir ehf: 14. verkfundur dags. 18. janúar 2012.
Naustaskóli II. áfangi uppsteypa - SS Byggir ehf: 16. verkfundur dags. 31. janúar 2012.
Kaffihús í Lystigarðinum - BB Byggingar ehf: 2. verkfundur dags. 16. janúar 2012.

Fundi slitið - kl. 09:00.