Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

190. fundur 16. júní 2011 kl. 08:15 - 09:15 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Sigríður María Hammer varaformaður
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Hjörleifur H. Herbertsson
  • Ólafur Jónsson
  • Sigfús Arnar Karlsson
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Hjúkrunarheimili Vestursíðu - uppsteypa og fullnaðarfrágangur

Málsnúmer 2011060030Vakta málsnúmer

Farið yfir tilboðin sem bárust í byggingu hjúkrunarheimilis við Vestursíðu 9 og voru opnuð þann 1. júní 2011. Alls bárust fjögur tilboð í verkið:

Hyrna ehf kr. 690.227.895 - 90,9%
SS Byggir ehf kr. 623.010.518 - 82,9%
Tréverk ehf kr. 676.789.688 - 88,4%
Virkni ehf kr. 878.670.501 - 104,8%
Kostnaðaráætlun kr. 770.123.729 - 100,0%

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að gengið verði til samninga við SS Byggi ehf á grundvelli tilboðs þeirra.

2.Íþróttahús við Dalsbraut/KA heimili - verðkönnun í endurnýjun á gólfi og bekkjum

Málsnúmer 2011050051Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar samningur við Altís ehf um kaup og fullnaðarfrágang á nýju fjaðrandi dúkgólfi.
Sigfús Arnar Karlsson B-lista óskar eftir því að fulltrúi KA fái að fylgjast með framgangi verksins og leggur áherslu á að því verði lokið 20. ágúst 2011 eins og kemur fram í verksamningi.

3.Krógaból - húsaleigusamningur um neðri hæð Glerárkirkju

Málsnúmer 2011050165Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar nýr húsaleigusamningur fyrir leikskólann Krógaból sem gildir til ársins 2021.

4.Akureyrarvöllur - endurbætur 2010-2012

Málsnúmer 2010070100Vakta málsnúmer

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar bar fram fyrirspurn um framkvæmdir á Akureyrarvelli.
Valþór Brynjarsson verkefnisstjóri viðhalds og Kristján Snorrason eftirlitsmaður sátu fundinn undir þessum lið.

Stjórnin fékk þau svör að fyrsti leikur gæti farið fram föstudaginn 24. júní 2011.

Fundi slitið - kl. 09:15.