Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

184. fundur 04. mars 2011 kl. 08:15 - 09:05 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Sigríður María Hammer
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Sigfús Arnar Karlsson
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir
  • Valþór Brynjarsson
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Hjúkrunarheimili Vestursíðu - útboð jarðvinnu

Málsnúmer 2011010019Vakta málsnúmer

Farið yfir niðurstöður útboðs á jarðvinnu vegna byggingar hjúkrunarheimilis við Vestursíðu 9.
Eftirfarandi tilboð bárust:

G. Hjálmarsson hf - 38.870.200 - 79,7%
Árni Helgason ehf - 45.749.400 - 93,8%
G.V. Gröfur ehf - 45.813.995 - 93,9%
Skútaberg ehf - 57.224.500 - 117,3%

Kostnaðaráætlun hönnuða - 48.773.500 - 100%

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar staðfestir samning við lægstbjóðanda, G. Hjálmarsson hf.

2.Akureyrarvöllur - endurbætur 2010-2012

Málsnúmer 2010070100Vakta málsnúmer

Farið yfir niðurstöður verðkönnunar á innréttingasmíði í stúkuna.
Eftirfarandi tilboð bárust:

Trésmiðjan Ölur ehf - 10.024.600 - 102,8%
Tak innréttingar ehf - 10.834.328 - 111,1%
Hyrna ehf - 11.470.000 - 117,6%

Kostnaðaráætlun - 9.755.000 - 100%

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Trésmiðjuna Öl ehf.

3.Lystigarður - framtíðarsýn

Málsnúmer 2010110084Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðuna.

4.Fasteignir Akureyrarbæjar - aðgengi fatlaðra að byggingum bæjarins 2011

Málsnúmer 2011030020Vakta málsnúmer

Á bæjarráðsfundi þann 24. febrúar 2011 óskaði Ólafur Jónsson D-lista eftir að gerð verði úttekt á öllum stoppistöðvum SVA m.t.t. aðgengis og aðstöðu fyrir farþega.
Ólafur óskaði einnig eftir að haldið yrði áfram í þeirri vinnu að bæta aðgengi fatlaðra að stofnunum bæjarins. Bæjarráð vísaði erindunum til framkvæmdadeildar og Fasteigna Akureyrarbæjar.

Gerð hefur verið skoðun á aðgengi fatlaðra að stofnunum bæjarins. Fasteignir Akureyrarbæjar hafa verið að bæta aðgengið og mun sú vinna halda áfram.

Fundi slitið - kl. 09:05.