Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

174. fundur 17. september 2010 kl. 08:15 - 09:35 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Sigríður María Hammer
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Njáll Trausti Friðbertsson
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir
  • Valþór Brynjarsson
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Akureyrarvöllur - endurbætur 2010-2012

Málsnúmer 2010070100Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðuna á endurbótum á stúku við Akureyrarvöll.

2.Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2010

Málsnúmer 2010090084Vakta málsnúmer

Farið yfir drög að endurskoðun fjárhagsáætlunar fyrir árið 2010, 1. umræða.

3.Andapollur - girðing

Málsnúmer 2010090002Vakta málsnúmer

Farið yfir niðurstöður verðkönnunar á viðgerðum á girðingunni í kringum Andapollinn.

Kostnaðaráætlun fyrir verkið var kr. 9.402.400. Eftirfarandi tilboð bárust:

Sigvaldi Guðmundsson 7.775.500 82,7%

Árnes ehf 8.174.936 86,95%

Sigurgeir Svavarsson ehf 9.216.832 98,03%

Baldur Hauksson 9.502.430 101,06%

Hyrna ehf 9.509.100 101,13%

SS Byggir ehf 10.436.042 110,99%

L&S Verktakar ehf 12.046.100 128,12%

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að gengið verði til samninga við Sigvalda Guðmundsson á grundvelli tilboðs hans.

4.Hjúkrunarheimili - staðarval

Málsnúmer 2010050065Vakta málsnúmer

Formaður kynnti niðurstöður bæjarráðs um byggingu hjúkrunarheimilis við Vestursíðu.
Á fundi sínum 9. júlí sl. óskaði stjórn FA eftir tilnefningu félagsmálaráðs í verkefnislið vegna byggingar hjúkrunarheimilis.
Félagsmálaráð hefur á fundi sínum 8. september 2010 tilnefnt Dag Fannar Dagsson sem fulltrúa sinn í verkefnisliðinu.

5.Verkfundargerðir FA 2010

Málsnúmer 2010010174Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerð lögð fram til kynningar:
57. verkfundur útboðs 3 v/menningarhúss dags. 3. september 2010.

Fundi slitið - kl. 09:35.